málefni aldraðra.
Forseti. Hér hefst 3. umr. um þetta mál. Við 2. umr. sá hæstv. heilbrigðisráðherra því miður sér ekki fært að vera á staðnum og gat því ekki verið hér að svara þeim spurningum sem til hennar var beint á þeim tíma.
Forseti. Það er órói í salnum. Það er eins og þingmenn vilji ekki fylgjast með þeim umræðum sem eiga að fara fram um þetta mál.
En nú hefur hæstv. heilbrigðisráðherra séð sér fært að vera viðstödd og þess vegna vil ég gefa henni tækifæri til þess, alveg eins og ég ætlaði að gera í 2. umr. fyrr í dag, að svara til um það mál sem getið er um á forsíðu Fréttablaðsins í dag þar sem raktar eru staðreyndir úr nýju svari heilbrigðisráðherrans við fyrirspurn hv. þm. Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur um úthlutanir úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Þannig er að í Framkvæmdasjóð aldraðra greiðir hver maður með nokkrum undantekningum 6.314 kr. á ári og fyrirsögn Fréttablaðsins í dag er þannig að Óperukórinn söng á kostnað aldraðra. Það kemur í ljós að Óperukórinn kannast ekkert við að hafa sungið á kostnað aldraðra heldur fékk hann styrk frá heilbrigðisráðuneytinu og vissi ekkert hvert hann var færður. Óperukórinn kannast við að hafa sungið á Landspítalanum en að það hafi ekkert tengst öldruðum á neinn hátt.
Aðrir sem hér eru taldir í blaðinu eru Ungmennafélag Íslands, Söngskólinn í Reykjavík, Tónaljón, Lionsklúbburinn í Búðardal, Kvenréttindafélag Íslands og fleiri og eiga ekkert skylt við þetta mál því þeir sóttu aldrei um úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Þeir sóttu aldrei um að fá þessar 6.314 kr. sinnum eitthvað sem hver maður reiðir fram í þeirri vissu að hann sé að leggja peninga, nefskattinn sinn, í framkvæmdir fyrir aldraða, fyrir foreldra sína, fyrir afa og ömmu, fyrir sjálfan sig þegar þar að kemur, fyrir auðvitað allt aldrað fólk.
Ég vil gefa heilbrigðisráðherra færi á því að svara hvernig á þessu standi því að í Fréttablaðinu segir að heilbrigðisráðherra hafi ekki viljað tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Það er kannski mannlegt, en ekki stórmannlegt, af ráðherranum.
Ég vil einnig spyrja ráðherrann hvort enn standi yfir úthlutanir af þessu tagi úr Framkvæmdasjóði aldraðra þeim til háðungar sem þær fá því þeir eru settir inn í ákaflega vafasamt samhengi í þessum efnum. Það getur ekki verið gaman fyrir Garðar Cortes að þurfa að svara spurningum um það af hverju Óperukórinn sé að syngja fyrir fé úr Framkvæmdasjóði aldraðra.