133. löggjafarþing — 94. fundur,  17. mars 2007.

Vatnajökulsþjóðgarður.

395. mál
[22:29]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég kýs að skilja orð hv. þingmanns svo að hann hafi ekki verið að setja ofan í við mig fyrir að hafa verið að gera menn eitthvað hrædda við það þó að ég hafi lýst því yfir að afmörkun garðsins að mínu mati ætti frekar að vera nær því sem þingmannanefndin lagði til en það sem ráðgjafarnefnd umhverfisráðherra lagði til. Með því er ég einungis að segja að við verðum að viðurkenna að stór landsvæði eru utan þess svæðis sem getið er um í greinargerð með frumvarpinu. Við höfum fengið ábendingar frá fjölda umsagnaraðila um að svæði á borð við Langasjó, Krepputungur og fleiri svæði séu þess eðlis að þau ættu í framtíðinni að geta heyrt undir garðinn.

Ég er sannfærð um að þegar garðurinn verður kominn á stofn sjái landeigendur að þarna er verið að gera eitthvað sem er spennandi. Þarna er verið að framkvæma áætlun sem er gaman að vera með í. Ég trúi því og treysti að landeigendur átti sig á því að það verður gaman að vera með í þessu félagi, með þessu fólki sem ætlar að koma garðinum á laggirnar. Ég er því alveg sannfærð um að bara stemmningin sem myndast í kringum þetta verður þess eðlis að það verði fleiri sem koma til liðs á næstu árum og á endanum fáum við að sjá þá svæðisafmörkun sem þingmannanefndin óskaði eftir í skýrslu sinni og við flest höfum í orði kveðnu lýst stuðningi við.