Vatnajökulsþjóðgarður.
Frú forseti. Hér erum við að ræða nokkuð mikilvægt mál og maður hefði viljað hafa meiri tíma til umræðunnar, sérstaklega vegna þess að (Gripið fram í.) stofnkostnaðurinn við þennan þjóðgarð er á annan milljarð króna. Við erum að tala um verulega háa upphæð og að auki tekur þetta til stórs landsvæðis, stórs hluta Íslands. Þess vegna ætti að vanda vel til verksins og menn ættu að gefa sér tíma til að ræða málið til hlítar.
Það sem ég vil vekja athygli hér á og spyrja um — það væri fróðlegt að fá svör hjá hv. þingmanni, formanni umhverfisnefndar — er hvers vegna varaformaður hans geri fyrirvara við málið. Hver er ástæðan fyrir því? Það kemur fram á nefndaráliti að hann geri fyrirvara við málið. Er þetta alvarlegur fyrirvari sem hann gerir eða eru það einhver viss atriði sem hann gerir fyrirvara við, hv. þm. Guðjón Ólafur Jónsson? Það er æskilegt og í rauninni nauðsynlegt að formaður umhverfisnefndar segi okkur í hverju þessi fyrirvari liggur. Hér er um stórt mál að ræða og þarna er um að ræða nánasta samstarfsmann hæstv. umhverfisráðherra á þinginu, varaformann umhverfisnefndar, og það er nauðsynlegt fyrir framgang málsins að fá upp hver þessi fyrirvari er. Er það við þá stjórn sem er verið að búa til?
Ég hef vissar efasemdir um að það sé rétt að búa til stjórn yfir einum þjóðgarði þar sem stjórnarmenn með svæðisráðum eru hátt í 30 talsins. Mér finnst vera vel í lagt að hafa svo marga í að stýra einum þjóðgarði. Þó svo að hér sé um stórt landsvæði að ræða óttast ég að þetta sé ekki mjög skilvirkt og varla er það hluti af þeirri stefnu flokkanna að einfalda Ísland að hafa svo marga í stjórn á einum þjóðgarði. Mér finnst nauðsynlegt að þessu sé svarað. Ég hef efasemdir um þetta og það væri fróðlegt að fá fram hvort hv. þm. Guðjón Ólafur Jónsson hafi sömuleiðis þessa fyrirvara — eða eru þeir aðrir?
Við í Frjálslynda flokknum styðjum þetta mál þrátt fyrir að það sé ekki æskilegt stjórnarfyrirkomulag á þjóðgarðinum að hafa svo marga í stjórn. Ég efast um að hv. þm. Pétur Blöndal geti tekið undir að það sé hentugt fyrirkomulag að hafa svo marga, ég efast um það. En það er greinilegt að hv. þm. Guðjón Ólafur Jónsson hefur efasemdir um málið og það væri fróðlegt að fá fram hvort þær lúta að þessu.