133. löggjafarþing — 94. fundur,  17. mars 2007.

lögheimili og brunavarnir.

707. mál
[22:50]
Hlusta

Frsm. umhvn. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Þetta mál er flutt af umhverfisnefnd og tekur til tveggja þátta, annars vegar lögheimilismála og hins vegar brunavarna.

Frumvarpið er komið til út af starfshópi sem félagsmálaráðherra skipaði í desember 2002 sem leitaðist við að haga störfum sínum í samræmi við óskir félagsmálanefndar Alþingis í tengslum við frístundabyggð og brunavarnir þar að lútandi. Í viðkomandi starfshópi áttu sæti Björn Karlsson brunamálastjóri, Ellý K. Guðmundsdóttir, sviðsstýra umhverfissviðs Reykjavíkurborgar, Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, sem var formaður nefndarinnar. Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur félagsmálaráðuneytisins, var starfsmaður hópsins.

Í örstuttu máli er gert ráð fyrir ákveðnum sveigjanleika varðandi tímabundna skráningu lögheimilis í svokölluðum starfsmannabústöðum, í húsnæði sem ekki er heimilt að búa í núna. Það er það sem snýr að lögheimilunum. Síðan er hitt sem snýr að brunavörnunum og tengist þessu sama máli en það er komið til vegna þess að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins birti nýlega skýrslu um umfang búsetu í atvinnuhúsnæði. Í henni er áætlað að 1.250 manns búi að staðaldri í slíku húsnæði. Hluti af þessu húsnæði uppfyllir að áliti slökkviliðsins allar kröfur sem gerðar eru til starfsmannabústaða, aðeins er eftir að sækja um starfsleyfi. Þó er algengt að þörf sé úrbóta til að uppfylla eldvarnakröfur sem gerðar eru til íbúðarhúsnæðis. Þetta er tæki fyrir slökkviliðsstjóra til að gera betrumbætur til að auka öryggi fólks og að hann hafi þau þvingunarúrræði sem til þarf, virðulegi forseti, til þess að fylgja þessum málum eftir.

Algjör sátt varð um þetta í starfshópnum, algjör sátt líka í umhverfisnefnd og nefndin leggur til að þetta frumvarp verði að lögum.