almenn hegningarlög o.fl.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá allsherjarnefnd um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, breytingu á lögum um útlendinga, nr. 96/2002, og lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, með síðari breytingum. Þetta þingmál hefur gengið undir heitinu vitna- og fórnarlambavernd.
Nefndin hefur fjallað um þetta mál og fengið umsagnir.
Í frumvarpinu er lagt til að lögfest verði vernd til handa fórnarlömbum mansals sem er í samræmi við samning aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir til að sporna við skipulagðri, fjölþjóðlegri glæpastarfsemi.
Nefndin telur rétt að taka málið til frekari skoðunar og leggur til að því verði vísað til ríkisstjórnarinnar.