þjónustumiðstöð fyrir útgerð og siglingar í Norðurhöfum.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá samgöngunefnd um tillögu til þingsályktunar um þjónustumiðstöð fyrir útgerð og siglingar í Norðurhöfum
Nefndin hefur fjallað um málið. Með tillögu þessari er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að gera úttekt á möguleikum þess að á Vestfjörðum verði þjónustumiðstöð og umskipunarhöfn fyrir útgerð og siglingar í Norðurhöfum í samráði við heimamenn.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Kristján L. Möller og Þórunn Sveinbjarnardóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Jón Bjarnason var áheyrnarfulltrúi við afgreiðslu málsins og er samþykkur áliti þessu.
Undir álitið rita hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson, Herdís Á. Sæmundardóttir, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Guðjón Hjörleifsson, Sigurrós Þorgrímsdóttir, Jón Kristjánsson og Guðjón A. Kristjánsson.