133. löggjafarþing — 96. fundur,  18. mars 2007.

þingfrestun.

[00:26]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég vil fyrir hönd alþingismanna allra flytja hæstv. forseta þakkir fyrir ákaflega gott samstarf í vetur og fyrir hlý orð í okkar garð. Hæstv. forseti sagði að hún mundi sakna Alþingis, við munum sakna hennar. Við erum núna að ljúka átakaþingi í lok kjörtímabils og fram undan eru kosningar. Á slíkum tímamótum vakna ólíkar tilfinningar. Eins og forseti Alþingis sagði eru margir þingmenn að hætta setu á Alþingi, sumir eftir langa setu. Öll hafa þau með einhverjum hætti markað spor í þingsöguna og í löggjöf landsins. Við munum sakna þeirra allra, hver með sínum persónulega hætti. Alþingi er sem betur fer ekki bara vettvangur átaka ólíkra lífsviðhorfa og pólitískra stefna heldur er það líka samfélag þar sem menn bindast tryggum vináttuböndum sem oft og tíðum ná langt út yfir flokksmörk. Sum okkar eru líka að freista endurkjörs og eiga fyrir höndum spennandi og erfiða kosningabaráttu. Þeim okkar sem þeim hópi tilheyra óska ég þess helst að okkur takist að heyja málefnalega og drenglynda kosningabaráttu og okkur takist öllum að komast ósködduðum úr þeirri orrahríð.

Á þessum tímamótum hverfur forseti Alþingis, Sólveig Pétursdóttir, nú af þingi. Hún á að baki langan og farsælan þingferil og við höfum, alþingismenn allir, notið þess að hafa þaulreyndan þingmann í embætti forseta. Sólveig Pétursdóttir var lengi formaður mikilvægra þingnefnda og undir hennar forustu fóru í gegnum þingið mikilvægir og flóknir lagabálkar á sviði dómsmála og hún gegndi síðar embætti dómsmálaráðherra af miklum skörungsskap.

Það er mér ljúft fyrir hönd okkar þingmanna allra að flytja Sólveigu Pétursdóttur kveðjuorð. Ég hef þekkt forsetann lengi, við höfum setið svipaðan tíma á Alþingi Íslendinga og bæði tókum við fast sæti hér eftir kosningarnar 1991. Ég veit að þó að forseti sé stundum hörð í horn að taka ef þess er þörf þá er hún líka ljúfmenni að upplagi og lipur að eðlisfari og mjúk í mannlegum samskiptum. Það var þess vegna alltaf stutt á gáskann og glaðværðina á fundum okkar þingflokksformanna með henni í vetur.

Sólveig Pétursdóttir hefur notið virðingar í störfum sínum á Alþingi og á þeim stutta tíma sem hún hefur setið í forsetastóli hefur hún haldið merki Alþingis á lofti af reisn og myndarskap. Hún hefur verið ákaflega áhugasöm um bætt starfsumhverfi okkar alþingismanna og hún hefur sýnt einlægan vilja til þess að bæta ásýnd og vinnubrögð þingsins. Ég er viss um að við alþingismenn sem hingað komum saman aftur til fundar að loknum kosningum munum örugglega reyna að freista þess að bæta vinnubrögð Alþingis í þeim anda sem hún hefur lagt grunninn að.

Ég flyt forseta Alþingis þakkir okkar alþingismanna fyrir vel unnin störf og einkar góð samskipti. Ég vil sömuleiðis nota þetta tækifæri til þess að þakka því úrvalsfólki sem vinnur á vegum Alþingis fyrir alla þá aðstoð og greiðvikni sem þau hafa sýnt okkur í störfum sínum og fúslega og lipurt veitta aðstoð. Ég óska þingmönnum öllum og fjölskyldum þeirra velfarnaðar og þakka þeim góða samvinnu. Forseta og fjölskyldu hennar óska ég líka allra heilla í framtíðinni og bið þingheim allan að taka undir þakkarorð mín með því að rísa úr sætum. [Þingmenn risu úr sætum.]

Fyrir hönd okkar allra í virðingu og þökk færi ég forseta þennan blómvönd til tákns um það að það er einlægur vilji okkar að hvert sem leiðir hennar liggi verði þær jafnan blómum stráðar.