134. löggjafarþing — þingsetningarfundur

ávarp aldursforseta.

[14:18]
Hlusta

Aldursforseti (Jóhanna Sigurðardóttir):

Ég býð alla hv. alþingismenn, sem kjörnir voru í alþingiskosningunum 12. maí 2007, velkomna til starfa á Alþingi. Sérstaklega býð ég velkomna 24 nýkjörna alþingismenn sem ekki áttu hér fast sæti þegar Alþingi lauk störfum í marsmánuði síðastliðnum. Ég vil láta í ljós þá von að störf þessa nýkjörna þings verði landi og þjóð til heilla.

Fyrir hönd okkar alþingismanna heilsa ég starfsfólki Alþingis og vænti þess að við megum eiga góða samvinnu við það eins og endranær.