134. löggjafarþing — 1. fundur,  31. maí 2007.

kosning í fastanefndir skv. 13. gr. þingskapa.

[16:13]
Hlusta

Lúðvík Bergvinsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að taka undir heillaóskir með kjörið og óska forseta velfarnaðar í starfi.

Umræðan sem hér fer fram er athyglisverð. Efnislega snýst hún um að seinka um nokkra daga kjöri í tilteknar nefndir og breyta þingsköpum. Það er í raun efni umræðunnar og hún er dramatíseruð svo í þingsalnum að menn velta því jafnvel upp hvort fjárlög komi til umræðu í þinginu. Það er orðið innihald umræðunnar. Maður spyr: Hver er tilgangurinn með slíkum málflutningi?

Kjarni málsins er að þingflokkar stjórnarflokkanna hafa lagt til þessar breytingar. Það eru ekki tilmæli utan úr bæ. Það er verið að tala um breytingar á þingsköpum og að fresta um nokkra daga kjöri í nefndir. Komi hins vegar upp að það ástand í þessu samfélagi að ekki megi bíða með að kalla saman fundi í tiltekinni nefnd, eins og til að mynda hv. þm. Guðjón Arnar Kristjánsson óskaði eftir því að ein nefnd yrði kölluð saman vegna sjávarútvegsmála, væri sjálfsagt og eðlilegt að kjósa sérnefnd til að taka á því máli, ef það má ekki bíða í tvo, þrjá daga. Þetta er þannig mál og þess eðlis að mér finnst það umhugsunarvert að við getum ekki á þessum degi staðið saman að því að seinka kosningu um nokkra daga og virt orð forseta Íslands, sem hvatti þingið eindregið til þess að vera samtaka í sinni vinnu en ekki sundrað.