134. löggjafarþing — 3. fundur,  4. júní 2007.

drengskaparheit.

[15:03]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Einn nýkjörinn alþingismaður, hv. 7. þm. Suðvest., Jón Gunnarsson, er nú kominn til þings. Kjörbréf hans hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni og gerir hann það nú.

 

[Jón Gunnarsson, 7. þm. Suðvest., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]