sumarafleysingar á heilbrigðisstofnunum.
Hæstv. forseti. Ég vil beina fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra og spyrja hvort hann hafi nú þegar eða muni leita leiða til þess að létta heilbrigðisstofnunum þann vanda sem þær eru flestar ef ekki allar í hvað varðar sumarafleysingar og í raun mönnun í störf heilbrigðisstétta og þó sérstaklega störf hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða.
Það hefur oft verið erfitt, hæstv. forseti, fyrir heilbrigðisstofnanir að ráða fram úr sumarafleysingum en það hefur aldrei, leyfi ég mér að fullyrða, verið jafnerfitt og núna. Það er mikil þensla í þjóðfélaginu, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu og á nokkrum stöðum annars staðar á landinu en þetta virðist samt ekki eingöngu fylgja mestu þenslusvæðunum heldur er það viðloðandi úti um allt land að það er mjög erfitt að fá heilbrigðisstarfsfólk til starfa. Það er ekki hægt að bregðast við nema með því að draga úr starfsemi, að loka deildum eða hluta stofnunar, eða að draga svo úr starfseminni að biðlistar myndist.
Nú hefur hæstv. ríkisstjórn lýst því yfir í stefnuyfirlýsingu sinni að hún vilji bæði bæta þjónustu við aldraða og minnka og útrýma biðlistum. Ég vil því spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra með hvaða ráðum og hvort ráðuneytið hafi undið sér í að leysa úr þessum mikla vanda.