134. löggjafarþing — 3. fundur,  4. júní 2007.

Vaðlaheiðargöng.

[15:34]
Hlusta

samgönguráðherra (Kristján L. Möller) (Sf):

Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að við hv. 2. þm. Norðaust. höfum skipt um hlutverk eins og ég sagði áðan. Það var kominn tími til. Ég vænti þess þó að við þingmenn kjördæmisins alls, undir farsælli forustu hv. þm. Kristjáns Þórs Júlíussonar sem nú er 1. þm. kjördæmisins, getum unnið sameiginlega að því að framfylgja þessu máli og öðrum góðum málum í vegamálum, bæði í okkar kjördæmi sem og í öðrum kjördæmum landsins.