134. löggjafarþing — 3. fundur,  4. júní 2007.

Stjórnarráð Íslands.

1. mál
[17:40]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég heyrði ekki betur áðan en að hv. þingmaður væri að gagnrýna mig fyrir að hafa ekki beitt mér fyrir því að ráðuneytin yrðu tíu talsins. Ég gat þess í framsöguræðu minni að ætlunin væri að halda þeim möguleika opnum að gengið yrði lengra í að fækka ráðuneytum. Það kallar á meiri vinnu og meiri tíma.

Það er opnað fyrir það hér með ákvæðinu í f-lið 1. gr. frumvarpsins að sameina megi ráðuneyti með úrskurði forseta. Það er verið að opna á að það verði hægt að grípa til þess ráðs að sameina ráðuneyti og fækka þeim með þeim hætti þó að ekki sé gengið lengra hvað það varðar að stofna ný ráðuneyti eða annað þess háttar. Þetta er einfalt atriði sem er eðlilegt að hafa í lögum ef til þess kæmi að menn vildu ganga svo langt. Það hefði t.d. verið gott að hafa þetta í lögum þegar iðnaðar- og viðskiptaráðuneytin voru í reynd felld saman í rekstri þó að þeirri breytingu hafi aldrei verið komið í lög.