Stjórnarráð Íslands.
Hæstv. forseti. Ég verð nú að segja fyrir mig að ég vorkenni hæstv. forsætisráðherra meira og meira eftir því sem á daginn líður. Mér finnst þetta mjög aumkunarverð framganga. Svo leyfir hæstv. forsætisráðherra sér að vitna í Bjarna Benediktsson, einn vitrasta stjórnmálamann síðustu aldar, og bera hann saman við það sem verið er að gera hér í dag.
Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús. Bjarni Benediktsson hugsaði þetta ekki út frá mönnum eða samkomulagi stjórnmálaflokka. Hann hugsaði þetta sem vitur stjórnmálaleiðtogi út frá heildarhagsmunum lýðræðisins, íslenska þjóðfélagsins. En nú hefur komið í ljós eftir að hæstv. forsætisráðherra er búinn að flytja sína ræðu að enn kemur ekkert upp úr þessum pökkum. Það eina sem liggur fyrir er að fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús. Blessuð litla Hagstofan sem hafði verið ráðuneyti áður, hún verður stofnun. Síðan er ráðist í að höggva iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið í tvennt til þess að koma tveimur vinum fyrir, svo þeir geti verið ráðherrar yfir litlum ráðuneytum. Síðan á að höggva af landbúnaðarráðuneytinu ýmis þau verkefni sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur hingað til talið að heyrðu undir landbúnað og barðist fyrir því hér á sínum tíma eins og með landgræðslu og skógrækt. Nú henda þeir því í skúffu inni í sjávarútvegsráðuneyti.
Ég hefði talið mikilvægt að þar yrði jafnræði, hvernig þau ráðuneyti væru sameinuð. Það gat vissulega komið til greina. En ég verð að segja hæstv. forsætisráðherra, að mér finnst það mjög óskýrt sem hér hefur komið fram. Ég er mjög ósáttur. Ég verð að segja hér, hæstv. forseti, að ég þekki forsætisráðherra ekki fyrir sama mann við þessar aðstæður.
Þetta er aumkunarvert (Forseti hringir.) og ég geri kröfur til þess (Forseti hringir.) hæstv. forseti, að hæstv. forsætisráðherra sýni hér þá reglugerð sem hann er með í smíðum um hvert verkefnin (Forseti hringir.) eiga að fara.
(Forseti (ÞBack): Forseti vill áminna þingmenn um að ávarpa ætíð forseta.)