134. löggjafarþing — 3. fundur,  4. júní 2007.

Stjórnarráð Íslands.

1. mál
[17:49]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það væri ráð fyrir hv. þingmann að lesa frumvarpið. Það er ekkert minnst á iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið í þessu frumvarpi. Vegna hvers? Vegna þess að í núgildandi lögum um Stjórnarráðið eru það talin vera tvö ráðuneyti. Þannig hefur sú staðreynd að nú gegni tveir ráðherrar þeim ráðuneytum ekkert með þetta frumvarp að gera. Ekki neitt. Það er því misskilningur.

Frumvarpið er skýrt. Það gerir ráð fyrir tilteknum breytingum sem koma munu til framkvæmda um áramót. Í tengslum við þær breytingar er fyrirhugað að gera jafnframt breytingar á reglugerðinni um Stjórnarráðið sem leiðir af þessu og flytja hugsanlega fleiri málaflokka á milli ráðuneyta. Um það eru stjórnarflokkarnir að tala núna sín í milli og munu halda því áfram fram á haust.

Einnig þarf að breyta tilteknum sérlögum sem varða stofnanir sem kveðið er á um í lögum að heyri undir tiltekin ráðuneyti og geta komið þarna til skjalanna.

Hv. þingmaður lætur sér tíðrætt um málaflokka er varða landbúnaðarráðuneytið. Ég skal þá nefna ein sérlög sem þarf að breyta vegna þeirra breytinga sem fyrirhugaðar eru. Það eru lögin um búnaðarfræðslu vegna þess að ráðgert er, eins og fram hefur komið opinberlega, að flytja búnaðarháskólana tvo frá landbúnaðarráðuneytinu yfir í menntamálaráðuneytið. Það kallar á breytingar á lögunum um búnaðarfræðslu, ef ég man rétt. Það eru svona breytingar sem ætlunin er að ráðast í í haust og þá mun koma í ljós hvað fleira verður í þeim potti af hálfu ríkisstjórnarinnar.

Ég er ekki viss um að þingmenn allir leggist gegn þeim breytingum af sams konar afturhaldssemi og hv. þm. Guðni Ágústsson er að gera, (Forseti hringir.) meira að segja breytingum sem hann hefur ekki einu sinni (Forseti hringir.) séð.