Stjórnarráð Íslands.
Frú forseti. Það frumvarp sem hér hefur verið mælt fyrir af hálfu hæstv. forsætisráðherra tekur í raun á þremur meginatriðum. Í fyrsta lagi að breyta heitum ráðuneyta sjávarútvegsmála, landbúnaðarmála, heilbrigðis-, trygginga- og félagsmála og að Hagstofan verði ekki lengur sérstakt ráðuneyti. Í öðru lagi er kveðið á um að heimilt verði að sameina ráðuneyti enn frekar með forsetaúrskurði í stað lagabreytinga og í þriðja lagi er fjallað um starfsmannamál.
Enda þótt frumvarpið taki aðeins á ofangreindum tilteknum ráðuneytum er ljóst að viðameiri uppstokkun í Stjórnarráðinu er í farvatninu. Við myndun núverandi ríkisstjórnar var því lýst yfir af hálfu forustumanna stjórnarflokkanna að til stæði að breyta skipan ráðuneyta og færa verkefni milli þeirra og mun reglugerð um Stjórnarráðið því verða breytt sömuleiðis verði fyrirliggjandi frumvarp að lögum.
Þótt frumvarpið sem hér liggur fyrir boði í sjálfu sér ekki heildarbreytingar á skipan ráðuneyta er ljóst af allri umræðu, yfirlýsingum forustumanna ríkisstjórnarinnar og fjölmiðlaumfjöllun, að umfangsmiklar breytingar eru fyrirhugaðar, miklu viðameiri en frumvarpið gerir ráð fyrir. Hið sama kemur enn fremur fram í greinargerð með frumvarpinu, en þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Í kjölfarið verður reglugerð um Stjórnarráð Íslands, nr. 3/2004, breytt. Tilfærsla verkefna kallar enn fremur á breytingar á ýmsum sérlögum og verður frumvarp þess efnis lagt fram á haustþingi.“
Þess vegna er mikilvægt að ræða skipan Stjórnarráðsins heildstætt. Því hefði verið eðlilegt að í greinargerð með frumvarpinu væri gerð grein fyrir áformum ríkisstjórnarinnar í þessu efni.
Ég vil því beina þeirri spurningu til hæstv. forsætisráðherra hvort unnin hafi verið breyting á reglugerð um Stjórnarráðið og hvort sú þingnefnd sem fær þetta mál til meðferðar, væntanlega hv. allsherjarnefnd, geti fengið nánari upplýsingar um þau mál því það er eðlilegt að þingið sjái heildarmyndina fyrir sér þar sem fyrir liggur að breytingarnar taka í raun ekki aðeins til laganna um Stjórnarráðið heldur verða mun umfangsmeiri, bæði að því er varðar umrædda reglugerð og eins breytingar á margvíslegum sérlögum.
Ég hefði líka vilja spyrja hæstv. forsætisráðherra að því hvort það sé rétt skilið að fyrirhugaðar breytingar á verkefnum ráðuneyta samkvæmt reglugerðinni taki gildi samtímis breytingum á stjórnarráðslögunum, þ.e. um næstu áramót eða ef til vill fyrr.
Að mörgu leyti má segja að endurskipulagning Stjórnarráðsins sé tímabær. Lögin um Stjórnarráðið eru að stofni til frá árinu 1969 með þeirri breytingu að umhverfisráðuneytið var stofnað árið 1990. Í stjórnmálaumræðunni hér hafa margvíslegar hugmyndir og tillögur um breytingar á skipan Stjórnarráðsins komið fram á undanförnum árum. Má þar m.a. nefna tillögu til þingsályktunar sem hv. 4. þm. Norðaust. Steingrímur J. Sigfússon flutti á 131. löggjafarþingi um ráðuneyti lífeyris-, almannatrygginga og vinnumarkaðsmála. En þessi mál heyra í dag undir þrjú ráðuneyti, félagsmálaráðuneytið, heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið og fjármálaráðuneytið. Enn fremur lagði Samfylkingin fram á síðasta þingi frumvarp til laga um Stjórnarráð þar sem gert var ráð fyrir að ráðuneytin yrðu níu talsins.
Það er að sjálfsögðu ljóst að margháttaðar breytingar hafa orðið í atvinnuháttum og samfélagi frá því að lögin um Stjórnarráð tóku gildi fyrir bráðum fjórum áratugum. Sameining málefna atvinnuveganna í eitt ráðuneyti, flutningur almannatrygginga, lífeyrismála og málefna aldaðra til velferðarráðuneytis, efling umhverfisráðuneytis í umhverfis- og auðlindaráðuneyti, sameining sveitarstjórna og byggðamála í ráðuneyti með t.d. samgöngumálum, aukið vægi mannréttinda og lýðræðismála í t.d. dóms- og mannréttindaráðuneyti, eru allt atriði sem að mínum dómi kæmi vel til álita að skoða.
En til þess að endurskipulagning af þessu tagi geti tekist vel er algjör forsenda að vandað sé til undirbúnings og víðtæk pólitísk samstaða verði um þær breytingar. Hæstv. forsætisráðherra lýsti því til að mynda yfir í vetur þegar rætt var um endurskipulagningu Stjórnarráðsins að ekki hefði náðst nægilega mikil samstaða um málið til að unnt hefði verið að flytja frumvarp þar um.
Nú bregður hins vegar svo við að hér birtist frumvarp sem virðist lítið ígrundað og tekur langt í frá heildstætt á málum og hefur bersýnilega verið kokkað við kaffiborðið á Þingvöllum en ekki í því víðtæka samráði sem sami forsætisráðherra talaði um fyrr í vetur. Fyrri yfirlýsingar oddvita stjórnarflokkanna um fækkun ráðuneyta eru nú gleymdar og grafnar og fyrirliggjandi frumvarp er ekki í neinum takti við stefnu stjórnarflokkanna fyrir kosningar. Það er fróðlegt að skoða samþykktir flokkanna tveggja sem nú mynda ríkisstjórn, en í landsfundarsamþykkt Sjálfstæðisflokksins frá því í apríl síðastliðnum segir m.a., með leyfi forseta:
„Brýnt er að fækka ráðuneytum enda væri hagræðing í efsta lagi stjórnsýslunnar öðrum stofnunum, sem neðar eru, gott fordæmi. Auðvelt væri að fækka ráðuneytum töluvert, t.d. með sameiningu í eitt atvinnuvegaráðuneyti og eitt velferðarráðuneyti.“
Og í samþykkt Samfylkingarinnar frá sama degi segir, með leyfi forseta:
„Samfylkingin vill endurskoða Stjórnarráð Íslands, stofna eitt atvinnuvegaráðuneyti.“
Það er raunar í samræmi við frumvarp sem Samfylkingin flutti á síðasta þingi. Þannig lýstu báðir stjórnarflokkarnir því yfir fyrir kosningar að þeir vildu fækka ráðuneytum. En þegar á hólminn er komið skortir þá kjark og líklega metnað líka. Þegar berja þarf saman ríkisstjórn þá er það stólafjöldinn sem máli skiptir en hvorki málefnalegar eða faglegar forsendur né fyrri yfirlýsingar og samþykkir.
Það er að sjálfsögðu dapurlegt að svo hégómlegar ástæður skuli liggja að baki endurskoðun Stjórnarráðsins og það er vitanlega ríkisstjórninni og flokkunum sem að henni standa lítt til sóma.
Það vakti raunar óneitanlega athygli við myndun ríkisstjórnarinnar að einu sýnilegu breytingarnar á ráðuneytaskipaninni voru sameining sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyta og svo uppskipting iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta á tvo ráðherra. Í fyrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fór hvor flokkur með sex ráðuneyti. Í stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar tók Sjálfstæðisflokkurinn landbúnaðarráðuneytið og var þannig í raun kominn með sjö ráðuneyti en Samfylkingin sat eftir með fimm frá Framsókn. Til að bjarga andlitinu var svo iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu skipt milli tveggja herramanna, þeirra Össurar Skarphéðinssonar og Björgvins G. Sigurðssonar, hæstv. ráðherra.
Og í framhaldi hófst tal um hina nýju atvinnuvegi. Samkvæmt þessu tali Samfylkingarinnar um nýju atvinnuvegina fer Sjálfstæðisflokkurinn með forna búskaparhætti en Samfylkingin með atvinnuvegi 21. aldar. (Gripið fram í.)
Þetta er auðvitað hlálegt, frú forseti, og fullkomlega á skjön við málflutning núverandi hæstv. iðnaðarráðherra þegar hann flutti hér þingsályktunartillögu um stofnun atvinnuvegaráðuneytis. Þessi framsetning er einfaldlega ekki trúverðug.
Frú forseti. Fyrir utan þær breytingar á ráðuneytum sem frumvarp forsætisráðherra gerir ráð fyrir höfum við séð og lesið umfjöllun fjölmiðla um frekari breytingar sem munu hafa verið kynntar af formönnum stjórnarflokkanna á fundi með fréttamönnum. Þær upplýsingar liggja hins vegar ekki fyrir hér þegar þetta mál er lagt fram og ég ítreka því spurningar mínar til hæstv. forsætisráðherra hvað það snertir. Getur ráðherrann séð til þess að þingnefndin, hv. allsherjarnefnd, sem fjalla mun um málið, hafi þau gögn undir höndum við meðferð þessa máls?
Samkvæmt fjölmiðlaumfjöllun hefur verið rætt um að sveitarstjórnarmál flytjist frá félagsmálaráðuneyti til samgönguráðuneytis, að ferðamál færist til iðnaðarráðuneytis frá samgönguráðuneyti, menntamál landbúnaðar færist undir menntamálaráðuneytið frá landbúnaðarráðuneyti, að matvælaeftirlit verði flutt frá umhverfisráðuneyti til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis og vatnamál fari frá iðnaðarráðuneyti til umhverfisráðuneytis.
Þá var einnig talað um að málefni Íbúðalánasjóðs færi frá félagsmálaráðuneyti til fjármálaráðuneytis, að þróunaraðstoð flyttist frá utanríkisráðuneyti til viðskiptaráðuneytis og landgræðsla og skógrækt færi undir umhverfisráðuneyti frá landbúnaðarráðuneytinu. En í raun og veru er staðan sú að þetta eru einungis flugufréttir, við vitum ekki hvort þetta eru áformin. Og eins og ég sagði áðan eru þær breytingar sem rætt hefur verið um miklu viðameiri en frumvarpið sem hér liggur fyrir sýnir.
Þær viðamiklu breytingar í stjórnsýslunni sem ég hef verið að nefna endurspeglast aðeins að litlu leyti í frumvarpi hæstv. forsætisráðherra. Hvar eru öll þessi mál þá stödd? Er ef til vill bullandi ágreiningur innan stjórnarliðsins? Er þetta enn eitt dæmið frá tíu daga gamalli ríkisstjórn um mál sem alls ekki hafa verið rædd eða til lykta leidd á stjórnarheimilinu? Allt þetta undirstrikar hversu fáfengilegt það er í raun og veru að leggja hér fram mál með þeim hætti sem gert er án samhengis og heildarmyndar.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að heimilt verði að sameina ráðuneyti með forsetaúrskurði. Ég vil leyfa mér, frú forseti, að vara sterklega við þessu ákvæði. Fyrirkomulagi Stjórnarráðsins er skipað með lögum. Í lögunum er kveðið á um heiti og fjölda ráðuneyta. Það hlýtur því að orka mjög tvímælis að með forsetaúrskurði sem er þá fyrir atbeina forsætisráðherra, sé hægt að breyta lögum eða víkja ákvæðum þeirra til hliðar. Skiptir þá engu hver efnisbreytingin er, hvort það er til að fækka að fjölga ráðuneytum. Meginreglan hlýtur að vera sú að lögum verði aðeins breytt af Alþingi og þess vegna hef ég allan fyrirvara um þetta efnisatriði frumvarpsins.
Við vinstri græn erum að sjálfsögðu reiðubúin til frekari umræðu hér á vettvangi Alþingis til að fjalla um málefni Stjórnarráðsins. Ég vil nefna við 1. umr. nokkrar hugmyndir sem við teljum eiga erindi inn í umfjöllun um málið en undirstrika að hér er aðeins um fá atriði að ræða og alls ekki tæmandi umfjöllun.
Í fyrsta lagi nefni ég umhverfisráðuneytið. Það er okkar skoðun að efla beri umhverfisráðuneytið og stofnanir á þess vegum og sú efling eigi að byggja á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og hún á að haldast í hendur við nýja og framsýna stefnumörkun sem endurspeglar gjörbreytta stöðu og sýn á umhverfismál og nauðsyn samvinnu við frjáls félagasamtök. Að okkar mati er rétt að rannsóknir á náttúruauðlindum lands og sjávar, verndun þeirra og áætlanir um nýtingu séu á forræði umhverfisráðuneytisins sem vel færi á að kenna við umhverfi og auðlindir.
Í öðru lagi ætla ég að nefna byggða- og samgönguráðuneyti. Samgöngur eru undirstaða farsællar byggðaþróunar. Samgöngumál og byggðamál eru því nátengd og hið sama má segja um sveitarstjórnarmál og byggðamál. Sveitarfélögin hafa með höndum uppbyggingu mikilvægrar samfélagsþjónustu með það að leiðarljósi að búa íbúunum góðar aðstæður til uppvaxtar, menntunar, atvinnu og búsetu sem um leið eru undirstöður jákvæðrar byggðaþróunar. Víða í kringum okkur eru byggða- og sveitarstjórnarmál einmitt einn og sami málaflokkurinn, svo sem í Finnlandi, Noregi, Írlandi og Englandi. Og að vissu marki einnig í Þýskalandi.
Í þriðja lagi nefni ég atvinnuvegaráðuneytið. Við tökum í meginatriðum undir þá hugsun sem býr að baki sameiningu landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyta en teljum að engin skýr rök séu fyrir því að undanskilja iðnaðarráðuneytið í þessu sambandi. Sú ráðstöfun væri að vísu þeim stórfelldu annmörkum háð að hún kippti ráðherrastólnum undan hæstv. iðnaðarráðherra, Össuri Skarphéðinssyni, en líklega væri þó bættur skaðinn. Með nýju, heildstæðu atvinnuvegaráðuneyti, stórefldu umhverfis- og auðlindaráðuneyti og markvissu byggða-, sveitarstjórnar- og samgönguráðuneyti er engin þörf á sérstöku iðnaðarráðuneyti.
Í fjórða lagi nefni ég velferðarráðuneyti. Það er okkar skoðun að í ráðuneyti velferðarmála megi sameina flest þau málefni sem nú heyra undir félagsmálaráðuneyti en þar eigi einnig heima málefni lífeyrissjóða og lífeyrissparnaðar og almannatrygginga, málefni aldraðra og ef til vill fleiri mál sem lúta að velferð einstaklinga og fjölskyldna.
Frú forseti. Frumvarpið sem hér er til 1. umr. gerir ráð fyrir að starfsmenn þeirra starfsdeilda og málaflokka sem færast til samkvæmt lögunum haldi óbreyttum réttindum sínum. Það er að sjálfsögðu mikilvægt að tryggja réttarstöðu starfsmanna við breytingar af þessum toga og má þá í rauninni einu gilda hvort málaflokkarnir sem viðkomandi starfsmaður starfar við eru fluttir með lögum eða reglugerð. Ég skil athugasemdir með frumvarpinu að minnsta kosti þannig, og vænti þess að hæstv. forsætisráðherra geti staðfest það.
Hins vegar vek ég einnig máls á því að það er þýðingarmikið að leitað sé eftir viðhorfum starfsmanna og stéttarfélaga þeirra þegar fjallað er um þær breytingar sem frumvarpið boðar, m.a. að því er varðar skyldu til að auglýsa laus störf og hvort biðlaunaréttur skapast með þessum breytingum. Er þess vænst að þeirra sjónarmiða verði leitað í nefndarstörfum um málið.
Við í þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs teljum ýmislegt í fyrirliggjandi frumvarpi jákvætt, eins og þegar hefur komið fram í máli mínu. Við teljum til að mynda eðlilegt að horfa á atvinnuvegina í heildarsamhengi og vissulega er sameining landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytis skref í þá átt þótt ómarkvisst sé. Þá er flutningur almannatryggingahluta tryggingamála frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti til félagsmálaráðuneytis í anda tillagna sem áður hafa komið fram frá Vinstri grænum. Við áteljum hins vegar að engin tilraun er gerð til að kynna málið heildstætt og leggja það þannig fram og þær breytingar sem boðaðar hafa verið til hliðar við lagabreytingar eru einnig fálmkenndar og skortir framtíðarsýn. Það er bersýnilegt að stjórnarflokkarnir hafa lagt í þennan leiðangur með það veganesti í farteskinu að ráðherrum yrði ekki fækkað í stað þess að nálgast málið út frá því hvaða málaflokkar eigi eðlilega saman að teknu tilliti til þeirra fjölþættu samfélagsbreytinga sem orðið hafa undanfarna áratugi.
Við áskiljum okkur að sjálfsögðu allan rétt til að taka afstöðu til einstakra efnisatriða frumvarpsins á síðari stigum eða að flytja breytingartillögur við það eftir atvikum. Enn fremur erum við reiðubúin að taka þátt í málefnalegri vinnu við endurskoðun Stjórnarráðsins og leggja þá fram okkar hugmyndir og tillögur sem byggja á grundvallarsýn okkar á samfélagið með sjónarmið umhverfis, félagslegs réttlætis, jafnréttis, kvenfrelsis, lýðræðis og mannréttinda að leiðarljósi. Það er von okkar að málið fái ítarlega og vandaða efnismeðferð í nefnd og ekki verði kastað til höndunum við afgreiðslu þess enda engin þörf á að flýta sér um of þegar fyrir liggur að breytingarnar eiga ekki að taka gildi fyrr en um næstu áramót.