134. löggjafarþing — 3. fundur,  4. júní 2007.

Stjórnarráð Íslands.

1. mál
[18:09]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir málefnalega ræðu og margar athyglisverðar athugasemdir um þessi mál. Það liggur fyrir eins og kom fram í máli hans að hægt er að fara margar leiðir í þessu og það eru margar góðar hugmyndir á sveimi um skipan ráðuneyta og verkaskiptingu í Stjórnarráðinu. Hann nefndi sjálfur ýmsar í þá átt sem hann og hans flokksmenn og fleiri hér á Alþingi hafa flutt.

Breytingin sem lögð er til í þessu frumvarpi er lítil, það er rétt. Hún klárar ekki málið en það er mikilvægt að ljúka henni. Það er mikilvægt að koma þessum breytingum frá og síðan geta menn haldið áfram, hvort sem það verður strax á næsta hausti eða síðar, að þróa Stjórnarráðið áfram til nútímalegra horfs en nú er. Þetta er málið í hnotskurn. Og af því að þingmaðurinn spurði mig hvort aðrar breytingar mundu taka gildi um áramót samkvæmt okkar ætlan þá hefur það þegar komið fram í ræðu minni að það er einmitt þannig að aðrar breytingar muni koma samtímis til framkvæmda.

Ef það væri eitthvað sem hv. þingmaður eða aðrir þingmenn kynnu að vilja leggja í það púkk, t.d. á hausti komanda, sem við gætum orðið sátt um þá væri alveg rakið að það tæki gildi á sama tíma. Með öðrum orðum, það er ekki útilokað að við getum orðið sammála um einhverjar fleiri breytingar þegar líður á haustið. En ef við hefðum bara setið hér og ekki hugsað okkur að gera nokkrar einustu breytingar þá væri nú ekki vel komið fyrir okkur. Menn hafa rætt um það árum saman að laga til í Stjórnarráðinu hvað varðar verkaskiptingu og skipan ráðuneyta en núna, loksins þegar það er verið að hreyfa við lágmarksbreytingum, stökkva menn hér jafnvel upp á nef sér og mikla þetta fyrir sér sem eitthvert gríðarlegt stórmál og nú má allt í einu engu breyta. Það er a.m.k. tónninn hér í sumum þingmönnum, ekki þeim sem talaði síðast en sumum sem hér hafa látið í sér heyra í dag. Einhvers staðar verður að byrja á þessu og það er það sem verið er að leggja hérna til.

Ég man mjög vel eftir því að 1983 var sett á laggirnar sérstök nefnd í kringum stjórnarmyndunina þá til þess að gera svona tillögur. Þeir komust ekki lönd eða strönd þrátt fyrir að eyða í það miklum tíma vegna þess að þeir ætluðu sér um of, þeir ætluðu að taka allt málið í einu og reyna að klára það allt saman. Það er margbúið að sýna sig að sú aðferðafræði hefur ekki skilað árangri og þess vegna höfum við valið þá leið núna að fara í tilteknar lágmarksbreytingar sem þó eru einfaldar og skýrar, felast í þessu frumvarpi, og ég held að ef allir þingmenn mundu skoða hug sinn ættu þeir auðvelt með að samþykkja þessar breytingar. Hvað síðan kemur í framhaldinu verðum við að skoða þegar þar að kemur.