Stjórnarráð Íslands.
Virðulegur forseti. Það er ekki rétt að ekkert hafi verið unnið í þessum málum í tíð síðustu ríkisstjórnar en það var einmitt Halldór Ásgrímsson sem setti á stofn nefndir til að fjalla um þessi mál. Síðan tók hæstv. forsætisráðherra við því kefli og kynnti breytingar fyrir forustumönnum flokkanna fyrir síðustu kosningar en þar sem ekki náðist víðtæk pólitísk samstaða um það var ekki farið í breytingar. Nú er verið að kynna breytingar án nokkurrar samstöðu um þær. Það er sagan sem liggur að baki.
Hv. þm. Lúðvík Bergvinsson segir að með þessari lagabreytingu geti framkvæmdarvaldið skipulagt sig sjálft og sameinað ráðuneyti. Reyndar er hægt að leggja niður ráðuneytið, við sameiningu er verið að leggja niður ráðuneyti. Ef tvö eru sameinuð í eitt. Þetta er rétt hjá hv. þingmanni.
Hins vegar var Samfylkingin allt annarrar skoðunar á síðasta og þarsíðasta þingi þegar þeirra mál leit dagsins ljós. Það segir alveg skýrt í því máli í 1. gr.:
„Ráðuneyti má eigi á stofn setja né af leggja nema með lögum.“
Í greinargerðinni er síðan sagt að skynsamlegra sé að binda þetta í lög, þ.e. að löggjafinn ákveði þetta en ekki framkvæmdarvaldið sjálft, eins og segir í f-liðnum hérna. Samfylkingin er því búin að breyta um skoðun í þessu. Eins og þetta mál er vaxið, ef það verður að lögum, kemur löggjafinn ekki meira að því, sé ráðuneytum fækkað, þ.e. hreinum ráðuneytum er skellt saman. En Samfylkingin var ekki þeirrar skoðunar á síðasta þingi þannig að þar hefur orðið kúvending.