þátttaka Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu.
Virðulegi forseti. Já, það er rétt eftir tekið hjá hv. þm. Bjarna Benediktssyni að ég hef ekki gert upp hug minn varðandi það hvort ég styðji þá fyrirhuguðu frestun sem hér er lögð til. Ég kallaði hér eftir frekari rökstuðningi fyrir þeirri frestun og sagði að mér fyndist þetta jafnvel bitamunur en ekki fjár. Ég sagði líka að ég teldi það skipta nokkru máli hvernig Noregur bregst við í þessum efnum og ég spurði líka til hvers og hvernig ætti að nota aðlögunarfrestinn sérstaklega gagnvart íbúum þessara tveggja ríkja. Það er ekki um aðlögunarfrest gagnvart öðrum íbúum Evrópusambandsins að ræða.
Já, það er rétt, ég benti einnig á að það er margt í ólestri hér varðandi móttöku erlends vinnuafls á landinu. En ég sé ekki að það sé neitt verra að taka á móti íbúum frá Búlgaríu eða Rúmeníu, ég á kannski bara eftir að fá röksemdir fyrir því af hverju það á að vera svona miklu erfiðara. Ég er komin í þennan stól til að spyrja þessara spurninga. Ef ekki fást svör við þeim hér í umræðunum fást þau væntanlega í nefndastörfum.
Eins og ég segi hef ég ekki gert upp hug minn varðandi þetta efni, hv. þingmaður.