134. löggjafarþing — 4. fundur,  5. júní 2007.

þátttaka Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu.

2. mál
[15:54]
Hlusta

Bjarni Benediktsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessi svör. Það er þá skýrt að hv. þingmaður hefur ekki gert upp hug sinn varðandi þetta atriði. Ég verð hins vegar að lýsa þeirri skoðun minni í tilefni af því að hv. þingmaður kýs að snúa þessu máli upp í það að hér sé tekið eitthvert sérstakt tillit til þess að þau ríki sem hér er um að tefla, Búlgaría og Rúmenía, skipti einhverju máli þegar lagt er mat á það hvort við frestum ákvæðinu um frjálsa för eða ekki að það er ekki það hvort þetta er Rúmenía eða Búlgaría, heldur snýst þetta um það hversu stór heildarmarkaðurinn er, hversu mikill fjöldinn er sem hefur aðgengi að íslenska vinnumarkaðnum. Það eru auðvitað rökin sem teflt er fram í þessu frumvarpi, þ.e. að hér erum við með viðkvæman vinnumarkað og við erum að leggja mat á það hvort við ætlum að hleypa jafnstórum markaði og verður til við stækkun Evrópska efnahagssvæðisins og gildir í þessu máli að íslenska vinnumarkaðnum.