134. löggjafarþing — 4. fundur, 5. júní 2007.
þátttaka Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu.
2. mál
Herra forseti. Ég fæ ekki séð að þessar 30 millj. til eða frá skipti verulega miklu máli þegar um er að ræða 500 millj. manna í Evrópu sem eiga nú þegar óheftan aðgang að íslenskum vinnumarkaði. Þess vegna spurði ég hvort það væri eitthvað sérstakt sem lyti að þessari afstöðu vegna þjóðernis þeirra íbúa í Rúmeníu og Búlgaríu sem hér um ræðir.
Íslenskur vinnumarkaður er vissulega smár í samanburði við evrópskan vinnumarkað en það munar ekki öllu um íbúa þessara tveggja ríkja.