þátttaka Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu.
Virðulegur forseti. Ég verð að biðja þingmanninn sem hér spyr að virða mér það til vorkunnar að þau mál sem þingmaðurinn spyr um eru í sjálfu sér ekki á málasviði utanríkisráðuneytisins heldur félagsmálaráðuneytisins og ég mun koma þessu áleiðis til þess.
Ég ítreka það sem ég hef hér sagt varðandi almannatryggingarnar en jafnframt, svo að ég vísi bara aftur til stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar, segir hér:
„Tryggt verði að útlendingar á vinnumarkaði njóti sambærilega réttinda og íslenskt launafólk og að allar ráðningar erlends verkafólks séu í samræmi við gildandi kjarasamninga.“