almannatryggingar og málefni aldraðra.
Virðulegi forseti. Ég átti von á því að tala hérna fyrir nokkrum klukkutímum síðan og vil byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu og hversu málefnaleg hún var, sérstaklega framan af og það var virkilega gaman að heyra þann samhljóm sem var í þinginu þegar kom að þessum málaflokki. Mér þótti það gott, virðulegi forseti, því að þrátt fyrir að við séum ósammála um ýmislegt gat ég ekki annað heyrt en að allir ræðumenn sem hér tóku þátt í umræðunni væru sammála um að hér væri stigið gott skref.
Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því að við erum hér á sumarþingi og fyrir fjórum árum, svo dæmi sé tekið — og ég tel það vera almennu regluna þegar menn koma saman eftir kosningar — þá var gengið frá því þingi á einum degi. Hins vegar er sú ríkisstjórn sem hér er að fara af stað að slá ákveðinn tón með þessum hætti, þ.e. að leggja áherslu sérstaklega á málefni tveggja hópa, yngstu kynslóðarinnar og þeirrar elstu. Það liggur alveg fyrir að við erum í mismunandi flokkum og við erum með mismunandi stefnur en mér þótti það gott, að a.m.k. framan af meðan menn héldu sig við málefnið, að menn voru mjög sammála um að hér værum við að gera rétt.
Mér þótti gaman að heyra hv. þingmenn flytja hér jómfrúrræður sínar, þeir voru a.m.k. þrír, hv. þm. Björk Guðjónsdóttir, hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir og hv. þm. Ármann Kr. Ólafsson. Ég held að það segi nokkuð um hversu mikill áhugi er hér á þinginu fyrir þessum málaflokki og fyrir því að gera vel við þennan hóp fólks að þessir góðu hv. þingmenn skyldu flytja jómfrúrræður sínar við umræðu þessa málefnis, því vanalega er það nú þannig að menn reyna að velja sér málaflokka fyrir jómfrúrræður sínar sem þeim er umhugað um.
Þegar við tölum um þetta mál í heild sinni þá er það þannig að við Íslendingar, og ég held að við deilum ekki um það, við erum með lífeyrissjóðakerfi sem aðrar þjóðir öfunda okkur af. Til dæmis ef við berum okkur saman við Evrópuríkin þá er það þannig að þau standa frammi fyrir vanda sem þau vita ekki hvernig þau eiga að taka á. Vandinn er einfaldlega sá að þar er mjög hátt hlutfall þjóðanna komið á efri ár og það er ekkert til í neinum sjóðum til þess að greiða þeim lífeyri, eða afskaplega lítið. Þar voru menn með gegnumstreymiskerfi sem gekk eðli máls samkvæmt ekki upp þegar fæðingum fór að fækka. Við Íslendingar höfum verið svo lánsamir að um nokkuð langan tíma höfum við greitt inn í sjóði þannig að t.d. flest þau sem hér eru og örugglega öll eigum eitthvað í sjóðum þegar við þurfum á því að halda. Það er hins vegar ákveðið millibilsástand sem gerir það að verkum að margt af því fólki sem við eigum afskaplega mikið að þakka býr ekki við sömu aðstæður og því fer víðs fjarri að það sé einfalt að finna lausnir fyrir þetta fólk.
Ég held hins vegar að við séum sammála um það að sú leið sem við erum fara hér sé skynsamleg. Hún kallar hins vegar á það, virðulegi forseti, að um það verði sátt að tveir einstaklingar sem vinna hlið við hlið, með sömu laun, að annar fái að auki fullar bætur úr almannatryggingakerfinu. Það er mjög mikilvægt að við, sem ég held að styðjum öll þetta mál, reynum að stuðla að slíkri sátt. En við skulum ekki halda að það sé algjörlega sjálfgefið.
Mér þótti, eins og ég nefndi, þessi umræða mjög góð og ég held að þetta frumvarp, sem ég er afskaplega ánægður með að fá að flytja sem mitt fyrst frumvarp sem heilbrigðisráðherra, muni breyta mjög miklu bæði til lengri og til skemmri tíma. Það er enginn vafi á því eins og menn hafa nefnt, hv. þm. Pétur Blöndal kom inn á það ásamt fleirum, að það hefur orðið gríðarlega mikil breyting á þjóðfélagsgerðinni og mikil breyting á því að vera eldri borgari núna og ég tala nú ekki um frá því fyrir 10, 20, 30 árum síðan. Reyndar er það svo að menn fundu skilgreiningu á þessum aldri, ef þannig má að orði komast, eftirlaunaaldri, 67 ára, ekki á síðustu öld heldur á öldinni þar á undan, og aðstæður fólks eru afskaplega misjafnar, það skiptir engu máli í hvaða aldurshópi það er. Sem betur fer lifir fólk alla jafna lengur nú og það er almennara að fólk sé með góða heilsu.
Hv. þingmaður Ellert B. Schram flutti hér rétt áðan ágæta ræðu. Ég var að spila með honum fótbolta í Egilshöll ekkert fyrir löngu, hann er 68 ára gamall og er bara einn besti „haffsent“ sem ég hef spilað við lengi. Það segir kannski nokkuð. Auðvitað eru kannski ekki margir á hans aldri sem eru jafn vel á sig komnir en aðstæður fólks eru mjög mismunandi og sem betur fer er það þannig að fólk hefur bæði áhuga, vilja og getu til þess að stunda störf lengur en áður og í því felast mikil verðmæti. Það er alveg hárrétt sem hér kom fram í umræðunni, gott ef það var ekki hjá hv. þm. Pétri Blöndal, að það þurfa allir að hafa tilgang í lífinu og sömuleiðis valfrelsi og eitt af því er það að geta sinnt störfum sem fólk hefur áhuga á.
Það er enginn vafi í mínum huga og það sem ég sé fyrir mér sem framtíðarsýn í þessu, vegna þess að ég tel að þrátt fyrir að margt gott hafi skeð á vinnumarkaðnum á undanförnum árum þá tel ég að það skorti sveigjanleika og ekki bara fyrir elstu kynslóðirnar heldur almennt. Ég vonast til þess að þetta ýti undir það að hér verði meiri sveigjanleiki á vinnumarkaðnum þó að það sé ekki talað um það beint í þessu máli, en það verði sá sveigjanleiki að við sjáum fólk á öllum aldri geta valið sér hlutastörf og sveigjanlegri vinnutíma en við þekkjum núna. Það snýr ekki bara að þeim sem eldri eru, það snýr jafnvel meira að fjölskyldufólki.
Virðulegi forseti. Ég lít svo á að sú umræða sem hér hefur farið fram, sérstaklega þegar hún var bundin við frumvarpið sem hér er um rætt, hafi verið mjög góð. Ég lít svo á að sú ríkisstjórn sem hér er að hefja störf og gerir það með þeim óvanalega hætti að leggja fram frumvarp á sumarþingi, að sú ríkisstjórn sé ekki bara að slá ákveðinn tón, ég lít svo á að hér sé góð samstaða á þinginu um að við skulum stíga skref hvað þetta varðar og hér sé ákveðin vegferð að hefjast. Ég óska okkur öllum velfarnaðar í því starfi og lýsi ánægju minni með þetta frumvarp sem hér er fram lagt og ég lýsi ánægju minni með umræðurnar um það. Ég vonast til þess að hv. heilbrigðisnefnd muni fara vel yfir þetta mál og ég vona svo sannarlega líka að hún geri það hratt þannig að við getum gert þetta að lögum, þetta góða frumvarp, sem allra fyrst þannig að fólk fái að njóta þess strax 1. júlí á þessu ári.