Íbúðalánasjóður.
Hæstv. forseti. Hér er hreyft við mjög mikilvægu máli sem er húsnæðismál. Húsnæðismál eru hluti af íslensku velferðarkerfi. Það að hafa þak yfir höfuðið er mannréttindamál og það hefur verið samstaða um það í þjóðfélaginu að hið opinbera komi að því að bjóða almenningi húsnæðislán á bestu kjörum hverju sinni. Og það er staðreynd að nær hvergi í víðri veröld eru fleiri sem eiga sitt eigið húsnæði en hér á landi. Opinbert húsnæðiskerfi hefur verið rekið í yfir 50 ár hér á landi, kerfi sem hefur sannað gildi sitt.
Íbúðalánasjóður tók til starfa árið 1999. Starfsemi sjóðsins hefur gengið með ágætum. Íbúðalánasjóður nýtur trausts landsmanna, 85–90% landsmanna vilja reka Íbúðalánasjóð áfram og stjórnvöld eiga að gæta að jafnræði byggðanna og íbúanna þegar kemur að grundvallarmálum líkt og húsnæðismálum.
Í dag er aðgengi allra jafnt að fjármagni Íbúðalánasjóðs, hvort sem viðkomandi býr á Þórshöfn eða í Reykjavík. Íbúðalánasjóður er mikilvægasta byggðastofnun landsins. Grundvelli hinna dreifðu byggða er ógnað ef frjálshyggjupostular innan Sjálfstæðisflokksins í samstarfi við íslenskt bankakerfi ætla sér að leggja þennan félagslega sjóð niður. Ég er hræddur um að verði Íbúðalánasjóður færður yfir til hæstv. fjármálaráðherra sé grundvelli Íbúðalánasjóðs ógnað. Það eru öfl innan Sjálfstæðisflokksins sem vilja einkavæða Íbúðalánasjóð og það þýðir ekki að þræta fyrir það. Verði það gert er stöðugleika í hinum dreifðu byggðum ógnað (Forseti hringir.) og þar munu þá sverðin hanga yfir hinum dreifðu byggðum.