Íbúðalánasjóður.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðna Ágústssyni fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli og vil hæla honum fyrir það. Ég er ekki ein um að binda vonir við nýjan hæstv. félagsmálaráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur þótt mér hugnist afar illa hin ýmsu einkavæðingar- og frjálshyggjumál sem nýja ríkisstjórnin virðist ætla að beita sér fyrir. Það er með vissri eftirvæntingu sem maður bíður eftir að sjá verk hins nýja hæstv. félagsmálaráðherra.
Mér finnst undarlegt að fá ekki skýr svör við mjög einfaldri spurningu sem var lögð fram í upphafi: Hvað á að gera við Íbúðalánasjóð? Hvar er honum ætlaður staður? Ég trúi því ekki að óreyndu að hæstv. félagsmálaráðherra hugnist sú hugmynd að færa Íbúðalánasjóð til fjármálaráðuneytisins. Við viljum líta á félagsleg úrræði í húsnæðismálum sem nauðsynlegt akkeri fyrir fólk þessa lands. Hvers vegna á Íbúðalánasjóður þá heima í fjármálaráðuneytinu en ekki félagsmálaráðuneytinu? Þar á hann heima, sterkur, og hann verður að styrkja eins og hér hefur komið fram.
Við vitum það öll, frú forseti, að fjármagnsöfl þessa lands og bankarnir kunna að hugsa um sinn eigin hag og það gera þeir með stæl, svo sannarlega. En það eru ekki bara þeir sjálfir sem kunna að hugsa um hag sinn, það gera líka ýmsir aðrir fyrir þá og þótt bankarnir hafi horn í síðu Íbúðalánasjóðs ber okkur sem eigum að hugsa um almannahag skylda til að standa vörð um sterkan Íbúðalánasjóð, styrkja hlutverk hans í þágu fólksins í landinu. Ég trúi ekki öðru en að hæstv. félagsmálaráðherra muni berjast fyrir því að halda honum sterkum og styrkja hann innan ráðuneytis síns.