134. löggjafarþing — 6. fundur,  7. júní 2007.

Íbúðalánasjóður.

[14:01]
Hlusta

félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Það er mjög sérkennilegt að halda því fram að hér séu ekki gefin skýr svör við þeim spurningum sem koma fram. Ég ítreka það að engar ákvarðanir hafa verið teknar um breytingar á sjóðnum. Það er staðreynd sem liggur fyrir. (Gripið fram í.) Og það eru skrýtnar fullyrðingar hjá hv. þm. Guðna Ágústssyni þegar hann segir að búið sé að semja um að færa sjóðinn á milli ráðuneyta. Þetta stenst ekki staðreyndir. Það er alveg ljóst að áður hefur verið fjallað um það álitamál sem ég nefndi, þ.e. þær deilur sem við eigum við ESA um ríkisábyrgðina. Það var fjallað um það í síðustu ríkisstjórn eins og hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson rifjaði upp og hver afstaða fyrrverandi formanns Framsóknarflokksins var til þess máls. Það liggur fyrir álit stýrihóps frá því í haust þar sem var ákveðið og talað um það að sjóðnum yrði gert kleift að fjármagna sig með fjölbreyttari hætti en nú er. Var í því sambandi nefnd útgáfa sérstakra skuldabréfa sem vænlegur kostur. Það er auðvitað ástæða til að skoða það að auka sveigjanleika sjóðsins að þessu leyti, eins og Framsóknarflokkurinn í fyrri ríkisstjórn talaði um. Það getur vel verið að við verðum bara knúin til að gera það ef niðurstaða ESA verður á þann veg varðandi ríkisábyrgðina.

Það er alveg ljóst að Íbúðalánasjóður hefur gegnt veigamiklu hlutverki í samkeppni við bankana og ég tel að hann hafi m.a. haldið niðri vöxtum hjá bönkunum. Þeir hafa farið offari að undanförnu í lánveitingum, lánuðu 34 milljarða í febrúar og mars með þessum erlendu lánum til einstaklinga á sama tíma og Íbúðalánasjóður lánaði 8 milljarða. Því ber að halda til haga þegar þetta mál er skoðað. Ég fullvissa hv. þm. Birki J. Jónsson um að (Forseti hringir.) Íbúðalánasjóður verður ekki einkavæddur meðan ég stjórna félagsmálaráðuneytinu.