134. löggjafarþing — 6. fundur, 7. júní 2007.
aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna.
12. mál
Frú forseti. Hv. þm. Kristni H. Gunnarssyni er frjálst að skilja orð mín eins og hann telur hverju sinni. Ég var ekki að senda þingmönnum Samfylkingarinnar tóninn fyrir að hafa tekið undir þá þingsályktunartillögu sem hér liggur. Mér hefur bara fundist, á þessum fyrstu dögum á nýjum vinnustað, að það mætti stundum sitja fremur en að fara í ræðustól og tala.