134. löggjafarþing — 6. fundur,  7. júní 2007.

aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna.

12. mál
[15:38]
Hlusta

félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég get fullvissað hv. þingmann um að sú tregða og sá fyrirvari sem hér er verið að tala um af hv. þingmanni, ég hef ekki orðið vör við slíkt nema hjá einum hv. þingmanni sem kom í ræðustól áðan, hv. þm. Einari Oddi Kristjánssyni. Það er ekkert sem segir mér að þingflokkur sjálfstæðismanna eða sjálfstæðismenn í heild sinni fari með hálfum huga inn í það að framkvæma þessa aðgerðaáætlun. Það verður þá bara að koma í ljós ef það er eftir því sem verkinu vindur fram, en meðan svo er ekki ætla ég ekki fyrir fram að gefa mér það að sjálfstæðismenn ætli að vera með einhverja tregðu eða fyrirvara að því er varðar þessa framkvæmd. Aðgerðaáætlunin heyrir undir fjögur ráðuneyti og það er ekkert sem segir mér annað en að allir þessir ráðherrar munu fara í það af fullum krafti að útfæra þá tillögu og það er ekkert sem bendir til þess að annað verði. Varðandi sveitarfélögin er afkoma þeirra auðvitað misjöfn og það þarf vissulega að fara í það verk sem snýr að þeim á þann hátt að það verði gert í samráði við þau.