aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna.
Hæstv. forseti. Hv. þingmaður má alveg taka til sín og síns flokks það sem ég beindi spjótum mínum að, þ.e. hve lítið hefði verið gert á síðasta kjörtímabili. Ég minni hv. þingmann á að í forsætisráðuneytinu sat fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, Halldór Ásgrímsson, og gerði ekkert í því að fylgja eftir þeirri tillögu sem Alþingi samþykkti 1991 um að gera heildarstefnumótun og aðgerðaáætlun í málefnum barna. Það var nákvæmlega ekkert gert í því. Síðan var sett einhver sérstök fjölskyldunefnd í ráðuneytið undir forustu Halldórs Ásgrímssonar til að fjalla um málefni fjölskyldunnar og koma fram með tillögur þar að lútandi. Það var nákvæmlega ekkert gert í því máli undir forustu Björns Inga Hrafnssonar. Það eina sem heyrðist frá þeirri nefnd var að hún skoðaði skólabúninga á þeim fjórum árum sem hún starfaði. Það var ekki mikið sem Framsóknarflokkurinn gerði þegar hann hafði tækifæri til þess að hrinda í framkvæmd aðgerðum í þágu barna og fjölskyldna. Hv. þingmaður hefur ekki af miklu að státa í þessu efni (Forseti hringir.) og ætti að tala varlega.