þátttaka Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá meiri hluta utanríkismálanefndar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna samnings um þátttöku Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu. Nefndin hefur fjallað um þetta mál og fengið á sinn fund fulltrúa úr utanríkisráðuneyti, félagsmálaráðuneyti og dómsmálaráðuneyti auk þess sem fulltrúi frá Alþýðusambandi Íslands kom á fund nefndarinnar. Frá umsagnaraðilum bárust aukinheldur gögn.
Með þessu frumvarpi er lagt til að samningur um þátttöku Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu verði fullgiltur, auk þess sem lagt er til að þær breytingar sem gerðar eru á meginmáli EES-samningsins með aðildarsamningnum hafi lagagildi hér á landi. Þá eru lagðar til breytingar á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks á Evrópska efnahagssvæðinu, lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga vegna þeirra aðlagana sem gerðar voru við ákvæði um frjálsa för launþega, en aðildarríkjum EES-samningsins er heimilt að beita eigin reglum á þessu sviði í tvö ár frá aðild nýju ríkjanna. Þannig er gert ráð fyrir því í frumvarpinu að ákvæði 1.–6. gr. reglugerðar ráðsins nr. 1612/68, um frelsi launþega til flutninga innan bandalagsins, ásamt síðari breytingum, taki ekki gildi um atvinnu- og búseturétt ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu fyrr en 1. janúar 2009. Því verður heimilt að fresta frjálsri för launafólks frá þessum ríkjum og fullum aðgangi þeirra að íslenskum vinnumarkaði til 1. janúar árið 2009.
Í störfum nefndarinnar var það einkum þetta síðastnefnda atriði sem kom til skoðunar. Að sjálfsögðu fór nefndin yfir öll efnisatriði málsins en umræður í henni snerust einkum að frestuninni sem lýtur að frjálsri för þessara nýju aðildarríkja.
Við skoðun aflaði nefndin sér gagna frá ráðuneytunum og fékk m.a. frá félagsmálaráðuneyti afrit af skýrslu starfshóps um málefni útlendinga á íslenskum vinnumarkaði sem er frá því í apríl á þessu ári. Eins og kemur fram í fyrrnefndri skýrslu hefur verið unnið mjög ötullega í þessum málaflokki fyrir forustu félagsmálaráðuneytisins og með þátttöku fjölmargra aðila til að tryggja að reglur um komu erlendra ríkisborgara inn á íslenskan vinnumarkað væru ásættanlegar og að í allri reglusetningu og lagagerð væri tekið tillit til þeirra nýju þátta sem horfa verður til þegar við tökum nú þátt í sífellt stækkandi vinnumarkaði á þessu stóra svæði, Evrópska efnahagssvæðinu.
Það kom fram í umsögnum þessara aðila og liggur reyndar jafnframt fyrir í skýrslunni að mikið verk hefur verið unnið í því að efla samvinnu ýmissa stjórnvalda sem komu að málaflokknum, lögreglu, skattyfirvalda, Tryggingastofnunar ríkisins, Útlendingastofnunar, Vinnueftirlits ríkisins, Vinnumálastofnunar og Þjóðskrár, og ýmis verkefni sem þessi starfshópur hefur hrundið af stað eru komin í góðan farveg. Nú síðast á þessu ári voru tillögur frá nefndinni lögfestar, samanber lög nr. 45/2007 sem fjalla um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra. Það hefur verið unnið að því að gefa út tímabundin skattkort. Það hefur verið skoðað hvernig betur mætti standa að útgáfu kennitalna fyrir erlenda ríkisborgara sem hingað koma til vinnu. Ýmsar hagræðingartillögur hafa komið frá nefndinni sem lúta að því að flýta ferlinu. Margt fleira gæti ég tínt hér til en allt þetta sýnir að mikið starf hefur verið unnið til þess að uppfæra reglur og samrýma og samræma vinnubrögð til þess að við séum betur í stakk búin til að taka við auknum fjölda erlendra ríkisborgara sem koma hingað inn á vinnumarkaðinn.
Að þessu öllu sögðu mætti kannski ætla að það væri engin ástæða til að fresta gildistöku ákvæðanna um frjálsa för gagnvart þessum nýju aðildarríkjum en byggt er á því í þessu frumvarpi og kom enn frekar fram í störfum nefndarinnar að það er full ástæða til þess, þrátt fyrir allt það starf sem unnið hefur verið, að taka sér tíma til að undirbúa komu þessara ríkisborgara inn á íslenska vinnumarkaðinn. Þar koma til að mynda til skoðunar ýmis atriði sem varða upplýsingagjöf og það að hafa tiltækar upplýsingar á tungumálum þeirra ríkisborgara sem hér eiga í hlut. Auk þess er enn þá verið að vinna úr ýmsum málum sem tengjast þeirri stækkun sem þegar er orðin. Má segja að þrátt fyrir nokkra þenslu á íslenskum vinnumarkaði séu í sjálfu sér ekki fyrirsjáanleg slík stórverkefni á íslenskum vinnumarkaði á komandi missirum að það kalli neitt sérstaklega á að nú verði strax opnað fyrir innkomu þessara ríkja. Síðan er auðvitað líka til þess að líta að ekki eru öll aðildarríkin að opna fyrir frjálsa för strax við innkomu ríkjanna. Þannig liggur fyrir að 15 þeirra ætla að fresta gildistöku ákvæðanna um frjálsa för í tvö ár og að 10 þeirra hyggist opna núna strax.
Eins og fram kemur í nefndarálitinu fagnar nefndin því starfi sem hingað til hefur verið unnið í því skyni að undirbúa komu erlendra ríkisborgara hingað til lands til vinnu. Meiri hluti nefndarinnar horfir í því sambandi sérstaklega til skýrslu starfshóps sem ég hef hér stuttlega tekið til umfjöllunar, skýrslunnar frá því í apríl. Það er auðvitað lykilatriði að sá tími sem nú er fram undan, þessi tveggja ára aðlögunartími sem reyndar er ekki nema tæplega tvö ár vegna þess tíma sem liðinn er frá undirrituninni, verði nýttur skynsamlega til þess að grípa til þeirra aðgerða sem stjórnvöld telja mikilvæg í þeim tilgangi að undirbúa komu þessara aðila hingað til lands.
Ég vil líka í þessu sambandi vekja athygli á því sem ég kom stuttlega að hér við 1. umr. þessa máls, að ríkisborgarar þessara ríkja njóta ákveðins forgangs umfram aðila sem eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Það gengur þannig fyrir sig að þegar sótt er um að koma hingað inn á íslenska vinnumarkaðinn hafa ríkisborgarar frá Evrópska efnahagssvæðinu forgang. Þegar kemur að því að sótt er um atvinnuleyfi fyrir þá sem koma utan Evrópska efnahagssvæðisins er alltaf fyrst horft til þess hvort áður hafi verið kannað með ríkisborgara frá annaðhvort Búlgaríu eða Rúmeníu. Þetta kemur fram í frumvarpinu sjálfu og veitir þannig, þrátt fyrir þá frestun sem við erum hér að mæla fyrir, ríkisborgurum þessara ríkja forgang fram yfir þá sem eru utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Ég vil loks nefna að nefndin bendir á að í vinnu starfshóps um málefni útlendinga kom til umræðu að heppilegt væri að sett yrði á fót þjónustumiðstöð stjórnsýslu, sem við nefnum svo í nefndarálitinu, þar sem útlendingar sem hingað koma gætu fengið fyrirgreiðslu allra sinna mála, hvort sem þau tengdust vinnu eða fjölskyldu- eða félagsmálum. Þannig telur nefndin að slíkt fyrirkomulag gæti verið mjög jákvætt og hvetur hlutaðeigandi ráðuneyti og stofnanir til að skoða málið frekar á næstunni. Þarna er sem sagt um það að ræða að reyna að auka skilvirknina í meðferð þessara mála og safna saman á einn stað þannig að stjórnsýslan eigi svo að segja eitt andlit gagnvart þeim sem til hennar þurfa að leita og menn samrými verklag og vinnubrögð og einfaldi stjórnsýsluna. Þetta finnst meiri hluta nefndarinnar sjálfsagt að verði skoðað áfram þó að ekki hafi fengist nein endanleg niðurstaða í þetta í starfshópnum.
Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt og leggur ekki til neinar breytingar. Undir það skrifa undirritaður, Árni Páll Árnason, Ragnheiður E. Árnadóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Siv Friðleifsdóttir, Guðfinna S. Bjarnadóttir, Lúðvík Bergvinsson og Jón Magnússon.