134. löggjafarþing — 6. fundur,  7. júní 2007.

þátttaka Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu.

2. mál
[17:42]
Hlusta

Frsm. minni hluta utanrmn. (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég ætla að gera hér grein fyrir áliti minni hluta utanríkismálanefndar sem ég skipa og útskýra aðeins afstöðu okkar til þessa máls. Það sem veldur sérstöðu okkar er að ég tel að á engan hátt sé rökstutt með fullnægjandi eða sannfærandi hætti að það sé nauðsynlegt að beita þessum aðlögunarákvæðum samningsins um stækkun Evrópska efnahagssvæðisins með þeim hætti sem frumvarpið gerir ráð fyrir, þ.e. að nýta þetta aðlögunartímabil og fresta gildistöku frjálsrar farar ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu fram til 1. janúar 2009 a.m.k..

Það er eðli málsins samkvæmt eðlilegt að gera til þess kröfu að stjórnvöld rökstyðji þörfina á að beita þessari undanþágu sem þetta vissulega er. Hér er eingöngu um að ræða heimildir til að fresta því að nýju aðildarríkin með stækkun Evrópusambandsins komi inn á hinn sameiginlega evrópska vinnumarkað. Andi málsins er allur sá að það þurfi að vera ríkar ástæður til staðar hjá þeim löndum sem grípa til þessara aðlögunarákvæða.

Þegar hin stóra stækkun átti sér stað jaðrar við að segja megi að vestur-evrópsku ríkin hafi komið allt að því óheiðarlega fram, mörg hver, við nýju aðildarríkin vegna þess að þeim var gefið fyllilega í skyn að þau yrðu tekin að fullu og öllu strax inn á vinnumarkaðinn. Það voru aðeins Þýskaland og Austurríki, ef ég man rétt, sem tilkynntu fyrir fram að þau mundu beita aðlögunarákvæðunum vegna viðkvæmni á vinnumarkaði og mikils atvinnuleysis, t.d. í Þýskalandi. Þar var það líka rækilega rökstutt og útskýrt og lá fyrir fyrir fram að slíkri aðlögun yrði breytt. Síðan brast á mikill flótti og flestöll aðildarríki Evrópusambandsins önnur og Evrópska efnahagssvæðisins gripu að lokum til aðlögunarákvæða gagnvart aðildarríkjunum 10. Það var einnig gert hér í tvö ár, eins og kunnugt er, en síðan var tekin sú ákvörðun vorið 2006 að falla frá þeim takmörkunum og samevrópski vinnumarkaðurinn sem Ísland á nú aðild að telur 500 millj. manna.

Það hlýtur því að þurfa að útskýra hvaða rök standa til þess að meðhöndla 8 millj. Búlgara og 22 millj. Rúmena öðruvísi en þessar 500 millj. sem þarna eru fyrir á sameiginlegum vinnumarkaði, þar á meðal miklu fjölmennari þjóðir með miklu meiri tengingar við Ísland eins og Pólland, Eystrasaltsríkin og Mið-Evrópuríkin.

Varðandi það að nýta eigi aðlögunartímann með einhverjum hætti sem hér á að búa til er almennt vísað í rök sem gilda alveg óháð því hvort Rúmenía og Búlgaría bætast við hinn sameiginlega evrópska vinnumarkað eða ekki. Það þarf að útskýra hverju það breytir sem kallar á að aðlögun sé beitt gagnvart þeim. Það eru ekki frambærileg rök að segja að það þurfi að taka betur á ýmsum hlutum sem snúa að málefnum fólks af erlendu bergi sem hér er á vinnumarkaði. Það er allt rétt og satt. En það þarf að gera algerlega óháð því hvaða stöðu rúmenskir og búlgarskir ríkisborgarar hafa á þessum vinnumarkaði næstu tvö árin.

Ég get tekið undir ýmislegt af því sem fram kom í framsöguræðu formanns, það hefur verið ýmiss konar viðleitni í gangi og margt ágætlega gert en það er þó okkar skoðun í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði að það þurfi að taka með miklu markvissari og beittari hætti á til að tryggja að fólk af erlendu bergi sem hér er á vinnumarkaði sæti ekki félagslegum undirboðum, á því sé ekki brotinn réttur hvað varðar laun, starfskjör og annað. Það þarf að gera hvort eð er og breytir engu um hvort Rúmenía og Búlgaría bætast við þennan hóp einhverjum missirum fyrr eða síðar.

Ég sé ekki þær sterku, skýru og fullnægjandi efnislegu röksemdir fyrir því að grípa til þessarar aðlögunar gagnvart þessum tveimur ríkjum. Það eru að mínu mati ekki rök að vísa bara í hina almennu stöðu og að betur þurfi að taka á í þessum efnum, það þarf svo sannarlega að gera gagnvart fjölmörgum þáttum þeirra mála. Nægir nú að vitna til fréttanna frá Kárahnjúkum en þaðan berast enn með reglubundnum hætti ótíðindi af því hvernig þar er níðst á erlendu verkafólki þannig að til stórskammar er fyrir land eða þjóð að það ástand skuli hafa viðhaldist þar á því svæði. En það hvaða reglum Búlgarar og Rúmenar sæta hér á vinnumarkaði næstu missirin skiptir bara engu máli í því sambandi.

Hættan er sú vegna þess sem formaður utanríkismálanefndar réttilega nefndi, að borgarar á Evrópska efnahagssvæðinu öllu hafa forgang umfram aðra til vinnu og Vinnumálastofnun og Útlendingastofnun vinna samkvæmt því eins og kunnugt er, að Rúmenar og Búlgarar komi þá á þessu tímabili inn í landið á öðrum forsendum. Sjálfsagt koma einhverjir á grundvelli þess að sótt verður um atvinnuleyfi fyrir þá en niðurstaðan gæti líka orðið að í því marki sem þeir koma inn á íslenskan vinnumarkað verði það í gegnum starfsmannaleigur. Er það til bóta? Varla er það þar sem staða þeirra er þá auðvitað enn þá lakari gagnvart kjarasamningum og réttindum á íslenskum vinnumarkaði.

Það er því okkar niðurstaða að við teljum að það hafi ekki verið rökstutt með fullnægjandi hætti að ástæða sé til að beita þessari aðlögun. Við ætlum á hinn bóginn ekki að leggja stein í götu þess ef stjórnvöld sem með framkvæmdina fara vilja fá þessar heimildir en þá er best að þau beri á því ábyrgð og við munum því sitja hjá við afgreiðslu málsins.