134. löggjafarþing — 6. fundur,  7. júní 2007.

þátttaka Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu.

2. mál
[17:48]
Hlusta

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Afstaða Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar í nefndaráliti hans í utanríkismálanefnd vekur mér nokkra furðu, þ.e. að byggja afstöðu sína á skorti á rökstuðningi. Þannig er málum háttað að enginn fulltrúi frá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði var á þeim fundi þar sem farið var yfir málið af hálfu stjórnvalda. Stjórnvöld færðu þar fram ítarlegan og vandaðan rökstuðning fyrir afstöðu sinni.

Það er athugunarefni að það hvarflaði ekki að nokkrum nefndarmanni að efast um réttmæti þess að beita þessari frestun í kjölfar þeirra skýringa. Rétt er að benda á að eftir einungis tveggja tíma umræðu um málið voru meira að segja tveir fulltrúar stjórnarandstöðunnar aðrir, sem þarna voru viðstaddir, tilbúnir að taka málið út úr nefndinni án frekari umfjöllunar, strax á fyrsta fundi.

Hv. þingmanni til upplýsingar skal ég hins vegar benda honum á að það liggur ljóst fyrir að okkar nánasta nágrannaland, Noregur, félagi okkar í EES, ætlar að beita aðlögunarfrestinum. Sama ætla 15 Evrópusambandsríki af 25 að gera, þar á meðal okkar nánustu nágrannaríki: Írland, Bretland og Danmörk.

Það liggur fyrir sameiginleg afstaða Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands um að fresturinn sé mikilvægur til að búa í haginn fyrir móttöku þessa fólks. Það liggur fyrir að það er verið að vinna að undirbúningi móttöku fólks af búlgörskum og rúmenskum uppruna af hálfu Alþýðusambandsins og af hálfu Vinnumálastofnunar. Þetta tel ég fullnægjandi rök. Það var sú afstaða sem réð mati meiri hluta nefndarinnar.