134. löggjafarþing — 6. fundur,  7. júní 2007.

friðlandið í Þjórsárverum og verndun Þjórsár.

6. mál
[18:55]
Hlusta

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég verð einfaldlega að fá að mótmæla því að það sé skynsamlegasta leiðin og sjálfgefin að virkja eigi neðri hluta Þjórsár í trássi við vilja og óskir heimamanna þar. Ég neita að gangast undir það að þetta sé einfaldlega búið og gert og það sé ekkert hægt að gera. Talandi um hrossakaup vegna Þjórsárvera þá er það náttúrlega ekkert nýtt í sögunni. Það hefur oft verið notað að segja: Fórnið þið nú þessu og þá skulum við bjarga Þjórsárverum. (Gripið fram í.) Það er ekki í fyrsta sinn sem það er gert. Er ekki einmitt tími til kominn að hætta því? Það á ekki að þurfa neina bitlinga eða hrossakaup vegna Þjórsárvera, það er svo borðleggjandi mál. Það á heldur ekki að gangast undir það að virkjanir í neðri hluta Þjórsár séu bara náttúrulögmál úr því sem komið er. Ég hafna þeirri röksemdafærslu.

Mig langar að benda á áskorun Náttúruverndarsamtaka Íslands sem og samtakanna Sólar í Straumi, Sólar á Suðurnesjum og Sólar á Suðurlandi sem beindu þeim tilmælum til hæstv. umhverfisráðherra og skoruðu á hann að fela stofnunum sínum, Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun, að draga fram og kynna fyrir almenningi heildarmynd áforma stóriðjufyrirtækja, orkufyrirtækja og orkuflutningsfyrirtækja á Suður- og Suðvesturlandi og tryggja að lýðræðisleg upplýst umræða um heildaráform fari fram og kosningar um málið og þau mál sem þar eru á döfinni. Það hefur ekkert heildarmat á þessum náttúrulegu verðmætum þarna farið fram, það er í rauninni staðreyndin.

Náttúrufarsleg sjónarmið, náttúrufarsrannsóknir eiga á okkar tímum að vera númer eitt, tvö og þrjú og svo á að skoða kröfur orkufyrirtækja og annarra og ásókn þeirra í orkuauðlindir.