134. löggjafarþing — 6. fundur,  7. júní 2007.

friðlandið í Þjórsárverum og verndun Þjórsár.

6. mál
[19:14]
Hlusta

Illugi Gunnarsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Mér sýnist mál hafa þróast þannig að það sé komin nokkuð skýr niðurstaða í þetta mál, þetta sé að falla saman þannig að ekki verði ráðist í Norðlingaölduveitu á meðan þessi ríkisstjórn situr og það verður farið með þetta mál eins og önnur mál í rammaáætluninni. Með öðrum orðum er engin hætta á að hlaupið verði í framkvæmdir í Norðlingaöldu án þess að það fari fyrst fyrir þingið. Það er mergur málsins.

Af því að hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir nefndi í upphafi að henni væri órótt í hjarta þá held ég að niðurstaða þessarar umræðu ætti í það minnsta að róa hana þegar upp er staðið. Það verða ekki teknar þær ákvarðanir sem hún hefur áhyggjur af einfaldlega vegna þessa skýra vilja ríkisstjórnarflokkanna.

Ég er því afskaplega ánægður með niðurstöðuna af þessum umræðum. Ég tel að þær hefi verið gagnlegar og sýnt fram á að það er skýr stefnumörkun af hálfu ríkisstjórnarflokkanna og skýr vilji til að samtvinna og sameina bæði nýtingarsjónarmið og verndarsjónarmið, eins og hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir tók vissulega undir í andsvari sínu hér áðan.

Auðvitað á það að vera þannig og verður að vera þannig í okkar litla landi að við ættum að ná einhvers konar samstöðu um þessa þætti. Við erum í því ferli miðju, eða langt komin öllu heldur. Ég hef trú á því að þegar þessi rammaáætlun verði fram komin munum við ná þeirri sátt sem er svo nauðsynleg fyrir svo mikilvægt málefni. Það er sjálfsagt að deila um það og rökræða um það en ég held að ég geti talað fyrir munn flestra þegar ég segi að ég hlakka til að geta hætt að rífast af þeirri hörku sem oft hefur verið um umhverfismálin. Þá getum við einbeitt okkur að því að ná þeim árangri sem við vissulega þurfum að ná í málaflokknum.