134. löggjafarþing — 8. fundur, 12. júní 2007.
almannatryggingar og málefni aldraðra.
11. mál
Hæstv. forseti. Ef einhver er að efna til ófriðar þá er það ríkisstjórnin. Það er ekki stjórnarandstaðan því að hún leggur til tillögur í þessari umræðu sem koma jafnt við alla. Þá erum við líka að tala um öryrkja, ekki síst vegna þess að það virðist vera vilji ríkisstjórnarinnar samkvæmt stjórnarsáttmála að bæta hag öryrkja líka en þessar tillögur ganga eingöngu út á það að bæta kjör þeirra sem orðnir eru 70 ára og eldri. Við erum ósammála því að taka út þennan eina hóp.