134. löggjafarþing — 8. fundur,  12. júní 2007.

áhrif framsals aflaheimilda í sjávarbyggðum landsins.

[13:44]
Hlusta

Karl V. Matthíasson (Sf):

Herra forseti. Það er mjög brýnt að við séum vakandi fyrir því sem er að gerast í lífi landsbyggðarinnar og það er augljóst að það hefur hallað undan fæti hjá mörgum byggðarlögum síðustu árin. Við höfum séð það. Það er alveg greinilegt að það tengist náttúrlega því kerfi sem við höfum búið við. Það er ljóst mál.

Það sem mig langar að segja hérna er að nú er komin ný ríkisstjórn og hún segir í ríkisstjórnarsáttmála sínum berum orðum að það skuli tryggja stöðugleika í sjávarútvegi. Það er líka talað um jafnvægi í byggð landsins. Eins og staðan er í dag, og hún blasir t.d. við á Flateyri sem hefur verið í umræðunni, held ég að ekki sé nokkur vafi á því að við verðum að grípa til bráðaaðgerða á þeim stöðum með byggðakvóta eins og hæstv. sjávarútvegsráðherra hefur sagt og hæstv. iðnaðarráðherra líka. Við þurfum að breyta reglunum og hvernig farið er í að úthluta þeim kvóta. Það er það sem þarf að grípa til í bráð.

Síðan getum við velt fyrir okkur hvort þetta sé eina lausnin í lífi landsbyggðarinnar. Auðvitað sjáum við að sjávarútvegurinn er grundvallargrein, ekki síst í þessum byggðum sem verið er að tala um, en engu að síður verðum við líka að fara að horfa á aðra þætti miklu meira, eins og í sambandi við samgöngur og að auka fjölbreytni í atvinnulífi með mörgum aðgerðum sem búið er að stinga upp á og koma með tillögur um. Að þessu verðum við að hyggja og ég vil leggja á það áherslu.