almannatryggingar og málefni aldraðra.
Hæstv. forseti. Það var ýmislegt merkilegt sem kom fram í ræðu hv. þm. Péturs H. Blöndals, framsögumanns meiri hlutans. Í fyrsta lagi kom fram sú skýra yfirlýsing að alls ekki hefði staðið til að ná fram neinum jöfnuði með þessari tillögu, það væri ekki markmiðið. Menn hefðu alls ekki verið að leita að því, bara alls ekki. Það liggur þá mjög skýrt fyrir, hæstv. forseti.
Mér finnst líka liggja fyrir ef ráða má í mál hv. þingmanns að það hafi meira en verið rætt innan Sjálfstæðisflokksins að vel gæti komið til greina og megi sérstaklega skoða það að hækka aldursmörk varðandi eldri borgara, þ.e. hvenær menn verða eldri borgarar, ekki 67 ára heldur á einhverjum allt öðrum aldri, (Gripið fram í: 85?) jafnvel yfir 72 ára. Núna erum við hins vegar að festa það í lög, ef af verður, að 70 ár séu sú lína sem dregin verði um það að þá eigi menn rétt á bótum frá Tryggingastofnun ríkisins óháð tekjum. Það skiptir ekki máli hvort tekjurnar eru 5 millj., 10 millj., 15 millj. eða 20 millj., allir sem eru komnir yfir sjötugt eiga rétt á að fá samkvæmt núgildandi reglum, að settum nýjum lögum, frá Tryggingastofnun greiddar út á bilinu 1,3–1,5 millj. á ári. Þetta er allt önnur stefna en almennt hefur verið unnið eftir í sambandi við lífeyrismál og réttindi aldraðra og öryrkja á undanförnum árum og áratugum. Það er mjög athyglisvert að Samfylkingin skuli vera þátttakandi í að móta þessa stefnu. Það er mjög athyglisvert, finnst mér, og ég held að maður geti ráðið þannig í ræðu hv. þm. Péturs Blöndals að hann telji sig bara á nokkuð góðri leið með þessi markmið sem hann lýsti sem áhugaverðum, þ.e. að hækka ellilífeyrisaldurinn, það væri engin regla á bak við það að nota 67 ár. Það kann vel að vera, maður getur kannski velt því eitthvað upp. Að minnsta kosti mætti hugsa sér að það væri valkvætt ef viðkomandi einstaklingur vildi. Það er að mörgu að hyggja í þessu máli, hæstv. forseti, og ýmislegt sem ég sagði í ræðu minni í morgun finnst mér vera að birtast í orðum hv. síðasta ræðumanns í þá veru að það hafi ekki verið svo fjarri lagi sem ég vakti athygli á.
Það er algerlega rétt sem hv. þingmaður sagði, það þarf sérstaklega að skoða fólkið í lífeyrissjóðunum sem á sáralítinn rétt en sýndartillagan sem ríkisstjórnin ætlar að framkvæma um að setja 10 þús. kr. inn í lífeyrissjóðinn til að greiða manninum sem hefur 15 þús. kr. rétt 25 þús. kr. út úr lífeyrissjóðnum bætir ekki mikið, hæstv. ráðherra. Það verða 3.800 kr. eftir af þessum 10 þús. kr. sem ríkisstjórnin hyggst bæta stöðu lífeyrisþega þegar búið er að fara í gegnum skerðingarregluna upp á 40% og skattinn upp á 36%. Auðvitað eru áhrifin sérstaklega valin með tilliti til þess að fara í gegnum lífeyrissjóðina og hafa þar ekkert frítekjumark og þá kemur það svo mikið til baka til ríkisins. Orð Stefáns Ólafssonar eru algerlega hárrétt, svona útfærsla gerir það að verkum að ríkissjóður er stærsti lífeyrisþeginn. Hann fær mest til baka af svona útfærslu.
Ég hélt að menn væru búnir að fara svo oft í gegnum rökræðu um tengingar og annað slíkt að stefnan sem menn hefðu markað, m.a. með því að fara núna úr 45% niður í 39,95%, hefði verið sú að draga úr tengingunni við tekjur, það væri sem sagt almenna leiðin, en núna á að fara með þetta niður í 35% í væntanlegri framtíð. Þá vænkast hagurinn örlítið en það er samt staðreynd að það vantar frítekjumark á lægstu lífeyristekjur. Það er staðreynd. Ef það á virkilega að laga réttarstöðu þess fólks sem af einhverjum ástæðum getur ekki verið úti á vinnumarkaði heldur þarf á því að halda að lifa af greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins annars vegar, þ.e. grunnlífeyri, tekjutryggingu og öðrum bótum plús þeim litla lífeyri sem fólk á í lífeyrissjóði, og þegar við stöndum uppi með þá staðreynd að 25% allra lífeyrisþeganna sem áttu fyrir einu og hálfu ári innan við 21 þús. kr. réttindi í lífeyrissjóði og eiga síðan að missa 40% af því í skerðingarreglur hjá Tryggingastofnun og borga 36% tekjuskatt af því sem eftir er, hljóta menn að skilja hversu brýnt þetta mál er.
Þá erum við líka komin að því, hæstv. forseti, að við erum að tala um að lagfæra stöðu þeirra sem lakast eru settir, ekki endilega þeirra sem eru betur settir. En það erum við að gera í þessari tillögu, við setjum ekkert þak, ekki frekar en við settum þak á Fæðingarorlofssjóðinn á sínum tíma þó að menn áttuðu sig síðar á því að það gat ekki gengið. Þá settu menn þak. Við setjum ekki neitt þak í þessa tillögu, hvorki við 10, 20 né 30 millj. í tekjur hjá einstaklingi. Dæmið sem ég tók í morgun af hv. þm. Ellerti B. Schram um það að þegar hann verður sjötugur eftir tvö ár og ætti rétt á sínum launum, eðlilega, sem þingmaður gæti hann tekið þessar viðbótargreiðslur frá Tryggingastofnun. Þannig er það bara, hæstv. forseti, og þegar þeir 600 einstaklingar sem hirða ekki núna um að taka rétt sinn hjá Tryggingastofnun fara kannski að gera það þegar þeir eiga orðið 1,3–1,5 millj. í rétt eins og ég benti á í morgun getur það orðið upp undir 780 millj. Ef við notum bara töluna 1,3 millj. er það svo: 600 x 1,3 = 780. Það er þá hreinn viðbótarkostnaður við þá tillögu sem hér er vegna þess að menn vita ekki hvort þessir einstaklingar fara að taka þetta út. Eins og ég hef margsagt í þessum ræðustól er það svo að við setjum lögin og síðan er það fólksins að fara eftir þeim. Hvers vegna skyldi fólk ekki nýta þessa réttarstöðu þegar hún er komin upp? Hvers vegna skyldi það afsala sér 1,3 millj. á ári? Auðvitað er þetta brúttótala, fólk sem hefur svona miklar tekjur fyrir er náttúrlega fyrir löngu búið að nýta persónuafsláttinn sinn og mun auðvitað borga skatta af þessum greiðslum frá Tryggingastofnun. Við getum auðvitað dregið það frá.
Það er afar nauðsynlegt, hæstv. forseti, að menn tali um þetta eins og það er, menn tali um lífeyriskerfið, bótakerfið frá Tryggingastofnun og greiðslur Tryggingastofnunar, menn tali um þessar tengingar, hvernig skattkerfið kemur inn í þetta og menn tali um skattleysismörkin. Það er samspil allra þessara þátta sem gerir það að lokum að verkum hvað fólk stendur uppi með í buddunni sem rauntekjur til að lifa af. Ef það er rétt sem sagt er, ég hygg að Hagstofan hafi gefið það út að það þurfi 160–170 þús. kr. í íslensku þjóðfélagi til að komast af, þ.e. ef þeir borgarar eiga að geta leyft sér eitthvað sem kallað er menningartengd eyðsla, þ.e. að fara kannski tvisvar í leikhús eða eitthvað slíkt og fá að gefa börnunum sínum og barnabörnum gjafir — Ég sé að hv. þm. Pétur H. Blöndal hristir höfuðið. (Gripið fram í.) Þú getur gáð að því sjálfur, hv. þingmaður. Spurðu Hagstofuna hvað hún telji að þurfi fyrir einstakling til að komast (Forseti hringir.) af í okkar þjóðfélagi.
Hæstv. forseti. Ég mælist til þess að hv. þingmaður verði beðinn um að leita sér upplýsinga.
Það er ekki rétt hjá hv. þm. Pétri H. Blöndal að ég hafi lagt til eða væri að hugleiða að fara með slík viðmiðunarmörk sem hér er verið að leggja til upp í 80 ár og ég liti það einhverjum sérstökum öfundaraugum að draga þessa línu yfir 70 ár. Ég lít það ekki öfundaraugum. Ég sé hins vegar misréttið sem kemur upp þegar menn sem teljast hátekjumenn í þjóðfélagi okkar geta jafnframt tekið fullar greiðslur frá Tryggingastofnun. Þannig hefur tryggingakerfið ekki verið byggt upp á undanförnum árum. Við höfum byggt það upp þannig að þeir sem hefðu meira handa á milli yrðu að sætta sig við að þola skerðingar. Áður var skerðingarreglan 67% hjá Tryggingastofnun, var fyrir nokkrum árum lækkuð niður í 45% og þá héldu eldri borgarar að þeir væru að bæta kjör sín verulega. En bótin týndist á 2–3 árum. Hvar týndist hún? Í lækkuðum skattleysismörkum. Menn fundu ekki þessa krónutölu sem þeir héldu að þeir fengju í budduna vegna þess að skattleysismörkin voru látin síga, persónuafslátturinn seig, og þar af leiðandi hvarf þessi mismunur á milli 45% og 67%. Ég hef oft spurt eldri borgara hvort þeir hafi ekki átt góð ár eftir að 67% reglan var færð niður í 45%. Það kannast eiginlega enginn við það enda er það rétt hjá þeim. Sá mismunur hvarf mjög fljótlega.
Hæstv. forseti. Ég fer ekki ofan af því að það þarf að horfa á þessi mál í heild sinni og af því að tilgangurinn hingað til hefur verið sá að reyna að bæta kjör þeirra sem lægstar hafa tekjurnar en ekki endilega færa þeim 1,3 millj. sem hafa 15 millj. í tekjur eins og við munum gera með þeim lögum sem hér á að samþykkja. Þar finnst mér öfugt farið að. Ég verð bara að segja það alveg eins og er, mér finnst öfugt farið að. Ég hefði talið að við ættum að halda okkur við þau markmið að útfæra þessar tekjutengingar þannig að þeir sem betur eru settir þurfi betur að þola þær en ekki hinir sem ekki hafa nægilegt sér til framleiðslu, ekki nægilegt til hnífs og skeiðar. Þegar maður stendur uppi með þá fullyrðingu hv. þingmanns að aldrei hafi staðið til að þetta verk yrði til jöfnuðar þarf maður svo sem ekkert að rífast um það. Þá vilja menn bara gera þetta svona.