almannatryggingar og málefni aldraðra.
Virðulegi forseti. Svo virðist vera sem aðkoma stjórnarflokkanna sé með mjög misjöfnum hætti að þeim tillögum sem liggja fyrir. Þannig sagði hv. þm. Ellert B. Schram að Samfylkingin styðji jöfnuð og réttlæti og þess vegna byggðist stuðningur hans við frumvarpið á þeim grundvelli.
Síðan kemur hv. þm. Pétur Blöndal og segir að tillagan sé sett fram til að nýta þrek aldraðra þjóðfélaginu til góðs en sé ekki til jafnaðar.
Hann endurtekur síðan og segir, með leyfi forseta:
„Það stóð ekki til að gagnast þeim sem verst eru settir.“
Það er að segja, þessi tillaga er ekki sett fram til þess að tryggja jöfnuð í þjóðfélaginu, ekki sett fram til að auka jöfnuð í þjóðfélaginu, þetta er ekki tillaga til að auka velferð eða tillaga í anda þess grunns þeirra hugmynda þess velferðarkerfis sem við settum og byggðum upp.
Af því að hv. þm. Pétur Blöndal vísaði til þess sem járnkanslarinn Otto von Bismarck gerði á sínum tíma, að vísu með tilliti til þess hvaða aldursmörk voru sett, er kannski vert að vekja athygli á því að þær hugmyndir sem þá lágu að baki þeim takmörkuðu tryggingum sem settar voru urðu til þess að tryggja þeim sem verst voru settir í því þjóðfélagi bættan hag til að auka jöfnuð í þjóðfélaginu.
Almennt séð byggjum við upp velferðarkerfi og höfum velferðarkerfi ekki til þess að auka millifærslur í þjóðfélaginu millifærslnanna vegna heldur til þess að færa fjármuni til þeirra sem hafa lakari kjör frá þeim sem hafa það betra. Þannig hefur velferðarþjóðfélag verið byggt upp, með skattkerfi og millifærslum til þeirra sem hafa lakari kjör. Einhvern veginn hefur þetta borið allt að með einstaklega sérkennilegum hætti og skekkst þannig, bæði skattkerfi og millifærslukerfi innan velferðarkerfisins, að ekki er um jöfnuð að ræða. Það er ekki réttlæti eins og komið hefur fram sérstaklega í máli hv. þingmanna Guðjóns Arnars Kristjánssonar og Álfheiðar Ingadóttur í ræðum þeirra um frumvarpið fyrr í dag.
Velferðarkerfi á að byggja upp fyrir þá sem á þurfa að halda til að auka jöfnuð í þjóðfélagi. Það sem við erum horfa á hér er ekki tillaga í samræmi við eða að hún hafi nokkra þýðingu varðandi velferðarkerfið og hefur enga þýðingu hvað varðar jöfnuð.
Mér brá svolítið við þegar ég hlustaði á hv. þm. Pétur Blöndal þegar hann lýsti því svo afdráttarlaust yfir að hér væri ekki um tillögu að ræða til að auka jöfnuð í þjóðfélaginu. Mér varð á að fara og skoða betur það álit sem meiri hlutinn leggur fram og sá að þetta var rétt hjá hv. þingmanni, að hvergi er vikið að því að tillagan sé til þess að auka jöfnuð í þjóðfélaginu. Ég skoðaði þá næst stefnumörkun ríkisstjórnarinnar í málinu þar sem fjallað er um bættan hag aldraðra og öryrkja og kom í ljós líka það sama, að ekki er verið að miða við aukinn jöfnuð í þjóðfélaginu. Svo virðist því sem stuðningur hv. þm. Ellerts B. Schrams við frumvarpið sé byggður á fölskum forsendum því að stuðningur hans var, eins og hann sagði áðan, byggður á því að hann vildi auka jöfnuð í þjóðfélaginu, sem ekki er stefnt að.
Það sem mér fannst mjög sérkennilegt og mjög athyglisvert við það sem hv. þm. Pétur Blöndal sagði var að tillagan er til að nýta þrek aldraðra í þjóðfélaginu. Ég verð að segja að mér fundust þessi orð vera nokkuð kaldranaleg í garð þessa hóps. Það var ekki spurningin um að bæta hag fólksins (Gripið fram í.) heldur að nýta þrek þeirra. (PHB: Þeir geta stundað vinnu.) Það var eins og gamall kommisar úr Sovétríkjunum væri að tala um hvernig mætti ná fram sem mestu út úr þjóðfélagsborgurunum. Mér fannst þetta óviðurkvæmilegt, ég verð að segja það.
Sjálfur hef ég eindregið verið þeirrar skoðunar að miklu máli skipti að við tækjum upp þá stefnu að hafa frítekjumark fyrir aldraða og öryrkja. Ég held því fram að við eigum að gera það en við eigum ekki að káka í málum með þeim hætti sem hér er verið að gera. Við eigum að gera það fyrst og fremst til að bæta lífskjör þessara hópa og til að auka jöfnuð í þjóðfélaginu. Það eiga að vera þær forsendur sem við byggjum á. Frítekjumark kostar ríkið ákaflega lítið ef nokkuð. Það getur jafnvel orðið til þess að auka tekjur ríkisins fyrir utan að það getur skilað okkur og fært okkur ánægðari og sælli þjóðfélagsborgara sem nýta og njóta þess betur að vera til og starfa í þjóðfélaginu. Það er það sem við eigum að stefna að, að auka lífshamingju auk þess sem við bætum hag þeirra sem þar er um að ræða. Á þann hátt vil ég starfa og ég vil leggja upp með slíka hluti.
Til að fara af stað með frítekjumark hefðum við þurft að fóta okkur og feta okkur hægt áfram. Við hefðum þurft að byrja með því að ákveða tölu, eins og t.d. lagt er til í tillögu minni hluta nefndarinnar, jafnvel u.þ.b. 1 milljón á ári sem væri frítekjumark bæði fyrir aldraða og öryrkja. Af hverju? Til að sjá hvernig sú breyting kæmi út í þjóðfélaginu.
Ég held því fram að hækka megi slíkt frítekjumark og væri það til góðs. Þegar verið er að taka upp breytta aðferðafræði er skynsamlegt að feta sig hægt áfram, skoða og sjá hvaða þjóðfélagsbreytingar það hefur í för með sér. Það að taka upp frítekjumark þar sem öldruðum og öryrkjum er gefinn kostur á að starfa án þess að það leiði til skerðingar bóta af hálfu ríkisins er af hinu góða og eins og ég sagði áðan til þess fallið að auka lífshamingju og bæta lífskjör. Það er ekki til þess að nýta þrek aldraðra í þjóðfélaginu þjóðfélagsins vegna heldur er það að mínu mati, öfugt við það sem hv. þm. Pétur Blöndal sagði, til að bæta hag þessara hópa. Þarna er meginmunur á milli þess sem ég verð að segja stjórnlyndra skoðana, eins og komu fram hjá hv. þm. Pétri Blöndal, og þeirra sem hafa frjálslynd þjóðfélagsleg viðhorf um hvernig við eigum að auka jöfnuð í þjóðfélaginu og gera hlutina á þann hátt að það gagnist sem flestum sem á þurfa að halda.
Velferðarkerfi á ekki að vera eingöngu velferðarkerfisins vegna til millifærslu fjármuna heldur útbúið með þeim hætti að það gagnist þeim sem á þurfa að halda til að tryggja jöfnuð í þjóðfélaginu, það er það sem er forsendan. Sú tillaga sem liggur fyrir er ekki til þess fallin að auka jöfnuð í þjóðfélaginu, þvert á móti eykur hún á óréttlæti gagnvart ýmsum. Þess vegna er útilokað annað fyrir alla þá sem unna jöfnuði og vilja vinna að raunverulegum umbótum fyrir hagsmuni aldraðra og öryrkja að greiða atkvæði gegn frumvarpinu og standa gegn því að öllu leyti.
Ég vil taka fram annað atriði varðandi þessi mál. Það hefði verið æskilegt að fyrst ríkisstjórnin er að leggja fram hugmyndir sem þessar hefði hún átt að gera það heildstætt, lagt fram heildstæðar hugmyndir varðandi aldraða og öryrkja og þá ekki bara aldurshópinn yfir 70 ára heldur frá 67 ára aldri. Ef það er hugmynd og hugsun að breyta viðmiðunaraldrinum hvað snertir aldraða úr 67 í eitthvað hærra væri æskilegt að það lægi fyrir. Taka ætti hagsmuni þessara hópa, aldraðra og öryrkja, saman og móta samræmdar tillögur. Það á ekki að taka út úr ákveðinn hóp, eins og hér er verið að gera, það er röng aðferðafræði.