aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að ræða um það hvort orðið árangurstengt er rétt eða rangt í sjálfu sér.
Það kom mjög skýrt fram hjá Stefáni Hreiðarssyni frá Greiningar- og ráðgjafarstöðinni og frá Braga Guðbrandssyni frá Barnaverndarstofu að þeir sæju fyrir sér að það yrði útlistað og skilgreint hvaða árangurskröfur yrðu gerðar. Eins og fram kom í umræðunni áðan þá þarf að tryggja það. Það er ekki um það að ræða að ljúka ákveðnu magni greininga óháð því hvernig þær eru unnar. Þetta vinnst með nákvæmum skilgreiningum á hvaða greiningu er verið að vinna og hvernig þær eru unnar en að því geta aðrir aðilar unnið en Greiningar- og ráðgjafarstöðin sem fylgdist með árangrinum af því starfi. Þannig skil ég þessa árangursmælingu. Það kom fram í nefndinni og þar var talað um að þannig væri hægt að vinna með biðlistana en síðan þarf að leita að langtímalausnum varðandi aðra þætti.
Önnur atriði voru nefnd í ræðunni en ég reikna með að fá tækifæri til að koma þeim að í lokaræðu þar sem við förum yfir málið.