134. löggjafarþing — 8. fundur,  12. júní 2007.

aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna.

12. mál
[17:10]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Við ræðum nefndarálit frá félagsmálanefnd, sem hún öll skrifar undir, og fjallar um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna. Þetta er afskaplega mikilvægt plagg og er í reynd ákveðin stefnuyfirlýsing eða ákveðið aðgerðarplan til að gæta hagsmuna þessa mikilvæga hóps í þjóðfélaginu sem eru börn og unglingar. Við verðum að átta okkur á því að velferðarkerfið er mjög mikilvægt hverjum einstaklingi, bæði hvernig það tekur á stöðu hans sjálfs og er eiginlega hluti af launakjörum eða starfskjörum hvers manns og hluti af lífi hans öllu. Þess vegna er mjög mikilvægt að velferðarkerfið sé skilvirkt, skipulegt, rökrétt og réttlátt.

Herra forseti. Mikið hefur verið talað um fátæk börn og mikið hefur verið notast við stærðfræðilega skilgreiningu á fátækt, sem er sú að þeir aðilar sem hafa minna en 50% af miðgildi tekna teljast fátækir. Þessi skilgreining er afskaplega gölluð, menn þurfa bara að átta sig á því og vita af því. Ef öll laun og bætur hækkuðu tvöfalt mundi fátæktin ekkert minnka þó að fólk gæti keypt tvöfalt meira. Nákvæmlega sama fólkið yrði áfram fátækt. Ef allir væru með jafnháar tekjur, segjum 70 þús. kr. á mánuði til ráðstöfunar, allir, þá er enginn fátækur samkvæmt þessari skilgreiningu.

Maður sem á miklar eignir, heilu jarðirnar og lendur og ég veit ekki hvað og hvað, svæði sem nýbúið er að skipuleggja, óskaplega ríkur en hefur engar tekjur, hann telst fátækur. Menn þurfa því að átta sig á þessu. Og umrædd skilgreining tekur ekki mið af eignum eða skuldum. Menn geta verið alveg skuldum vafnir með góðar tekjur af því að þeir þurfa að hafa góðar tekjur til að borga af skuldunum, eiga aldrei krónu en þeir eru taldir vera ríkir, ekki fátækir sem sagt.

Herra forseti. Ég sé alveg koma á næstu árum miðað við þá miklu skuldsetningu sem sumir hafa steypt sér í að við munum upplifa fyrirbærið fátækir hátekjumenn. Það er fólk sem búið er að ráðstafa öllum tekjum sínum til framtíðar með neyslulánum. Þótt það sé með háar tekjur þá er það búið að ráðstafa þeim og það hefur lítið sem ekkert til að lifa af. Þetta gætum við upplifað á næstu árum. Þess vegna er mjög mikilvægt að greiningin sem menn eru að reyna að setja fram í sambandi við fátæk börn sé rétt og menn átti sig á þeim galla sem fylgir svona stærðfræðilegri skilgreiningu.

Herra forseti. Mig langar til að ræða nokkuð það sem ekki má tala um og það er það sem síðasti hv. ræðumaður kom inn á, þ.e. fíkn. Við tökumst á við ýmiss konar fíkn, áfengis-, eiturlyfja- og spilafíkn, jafnvel neyslufíkn sem endurspeglast í óreiðu í fjármálum og mikilli skuldsetningu. Nú getur vel verið að einhver segi að það sé enginn fíkill á Íslandi. Það getur vel verið að einhver segi: Við skulum bara horfa fram hjá þessu, þetta er ekki vandi. En mér finnst menn oft líta á þetta eins og óhreinu börnin hennar Evu. Það á ekki að tala um þetta, þetta er óþægilegt. Þetta er þarna og ég held að það geti enginn mótmælt tilvist fíkla. Það má kannski segja að sumir haldi því fram að þeir hafi komið sér í þetta sjálfir. Það eru ýmis áhöld um það. En börnin þeirra hafa örugglega ekki komið sér í slíka stöðu sjálf eða systkini þeirra, foreldrar þeirra eða öll ættin sem fylgir með og jafnvel vinir sem eru að reyna að bjarga og hjálpa. Allt þetta fólk er saklaust og lendir í því að vera fátækt og verst er það með börnin. Það er ekki nóg með að alltaf vanti pening hjá fíklinum því fíknin er svo dýr, alltaf vantar peninga, það er bara einkenni, það held ég að flestir geti tekið undir, heldur er líka vanræksla hjá þessum börnum af því að fíkillinn er svo upptekinn af því að stunda sína fíkn og stundum er hann hreinlega út úr heiminum og jafnvel báðir foreldrar og þá er barnið hræðilega vanrækt. Svo lendir þetta barn auk þess stundum í ofbeldi því að fíknin leiðir oft til slagsmála og rifrildis eins og við þekkjum. Og ætla sér að horfa fram hjá þessu í aðgerðaáætlun til fjögurra ára þegar styrkja á stöðu barna og ungmenna finnst mér vera mjög alvarlegt.

Nú veit ég ekki hversu mörg börn eða unglingar falla undir þetta. Ég spurði um það á fundi í nefndinni í gær og fulltrúi SÁÁ ætlaði að gefa mér upp einhverja tölu en hún er ekki komin enn þá þannig að ég veit ekki hvað þetta eru mörg börn. Hvort þau eru 100, 1.000, 2.000, 5.000 eða hvað, ég veit það ekki. En vandi þeirra allra er mjög alvarlegur og það er mjög alvarlegt ef Alþingi ætlar sér að horfa fram hjá þessu af því að það er óþægilegt.

Það merkilega er að ef menn ætla sér að hækka barnabætur til að bæta stöðu fátækra barna, hvert halda menn, herra forseti, að þær renni hjá fíklunum? Ef barnabætur hækka um 3.000 kr., hvort halda menn að fíkillinn kaupi galla á barnið eða bokku fyrir sig? Ég læt mönnum eftir að svara þeirri spurningu. Hækkun barnabóta virkar ekki til hagsbóta þessara barna, ekki neitt. Menn þurfa að grípa til annarra ráða. Ég veit ekki hver þau eru en menn þurfa að ræða það, fara í gegnum það og finna út úr því.

Svo finnst mér líka, eins og ég hef nefnt áður á Alþingi, að við erum með fæðingarorlof sem gildir almennt til níu mánaða aldurs barnsins. Og hvað þá? Ég hef spurt að því. Hvað þá? Hvað gerist með barnið þegar það er níu mánaða? Fundin er einhver dagmamma og barnið fer að heiman níu mánaða gamalt. Sum þeirra þola það, önnur þola það ekki. Einmitt á þeim tíma þegar barnið er hvað virkast í því að mynda tengsl við foreldra sína er það rifið frá þeim. Allan daginn er það úti að vinna eins og foreldrarnir, tekið að heiman, sent út í heim. Ég tel að börn séu allt of ung til að fara út í heim níu mánaða gömul. Við þurfum og verðum að finna einhverja lausn fyrir börn þannig að þau þurfi ekki að vera að heiman, helst ekki undir þriggja ára aldri. Það er mín skoðun. Ég held að börn um þriggja ára aldur séu upptekin af því að uppgötva sitt nánasta umhverfi og mynda tengsl við þær tvær persónur eða einu sem er foreldri þeirra. Það er mjög mikilvægt.

Við gætum í rauninni fundið lausn á þessu ef atvinnulífið ynni með og foreldrarnir ynnu t.d. á vöktum, annað fyrir hádegi og hitt eftir hádegi. Og við tækjum inn í dæmið greiðslur sveitarfélaganna til dagmæðra og barnaheimila, þá er hugsanlega hægt að finna lausn á þessu án mikils kostnaðarauka við núverandi kerfi en þetta krefst skipulagningar.

Mér finnst líka vanta, það kemur reyndar inn í nefndarálitið, úrlausn hjá meðlagsgreiðendum sem eru atvinnulausir. Það er alveg hræðileg staða. Þetta eru yfirleitt karlmenn og segjum að einhver þeirra borgi meðlag með þrem börnum, 50 þús. kr. ef borgað er einfalt meðlag á mánuði, og ef hann er atvinnulaus er hann kominn eftir þrjá mánuði niður í einfaldar atvinnuleysisbætur og þá fær hann rétt rúmlega 100 þús. kr. útborgaðar. Þessi maður þarf sem sagt að lifa af 50 þús. kr. á mánuði og það sér hver einasti maður að það gengur ekki upp, 50 þús. kr. er of lítið til að lifa af og sérstaklega ef hann á að taka sómasamlega á móti þessum þrem börnum sínum þegar þau koma í heimsókn. Þetta er því eitthvað sem við verðum að ræða, jafnvel þó sumir haldi því fram að karlmenn eigi að borga með börnum sínum hvað sem tautar og raular.

Það sem einnig vantar inn í aðgerðaáætlunina er kannski það að foreldrar í dag hafa enga reynslu úr barnæsku sinni varðandi tölvunotkun, þegar börn eru mikið við tölvu, sjónvarp, í tölvuleikjum o.s.frv. Foreldrar hafa almennt enga reynslu úr sínu eigin uppeldi, það voru ekki tölvur þá, netið var ekki. Hvað á barn að vera marga klukkutíma á dag á netinu og hvaða hættur blasa þar við? Þetta er eitthvað sem getur fallið undir það sem kemur fram í III. kafla í tillögunni um þjálfun í foreldrafærni en helst þyrfti að taka það fram og þess vegna nefni ég það hérna.

Að lokum, herra forseti, vil ég lesa upp úr nefndarálitinu það sem ég tel kannski vera mikilvægast í þessu, með leyfi hæstv. forseta:

„Nefndin bendir á mikilvægi þess að þeim lagafrumvörpum og tillögum sem lögð verða fram í kjölfar samþykktar tillögunnar fylgi ítarlegt kostnaðarmat. Þá bendir nefndin á að horfa þurfi til afkomu ríkissjóðs og efnahagslífsins í heild við framkvæmd þeirra aðgerða sem tillagan felur í sér.“

Þetta er afskaplega mikilvægt. Vitaskuld er þetta sjálfsagt mál og ætti í rauninni ekki að þurfa að taka það fram. En það er því miður þannig að mjög margir og jafnvel þingmenn telja að guð almáttugur borgi þetta allt saman. En að sjálfsögðu er þetta allt saman á kostnað skattgreiðenda landsins og hafa þarf í huga að þeir geti og vilji borga þessar aðgerðir allar og svo þurfa menn að hafa í huga að aðgerðirnar þurfa ekki endilega að vera dýrar. Það er ekki endilega þannig að tvöfalt meiri peningar gefi tvöfalt meiri velferð. Einföld skipulagsbreyting getur gefið það og gert sama gagn.