134. löggjafarþing — 8. fundur,  12. júní 2007.

aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna.

12. mál
[17:39]
Hlusta

Frsm. fél.- og trn. (Guðbjartur Hannesson) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég þakka þá jákvæðu umfjöllun og góðu umræðu sem hér hefur farið fram og jákvæð orð í garð þeirrar þingsályktunartillögu sem er til umræðu. Almennt hafa menn fagnað henni og ætlast til að með þingsályktuninni verði sett í gang aðgerðaáætlun í samræmi við þá punkta sem þar eru.

Það komu auðvitað fram í ræðum manna ýmsar ábendingar eða áminningar um að þeir vilji fylgja einhverjum ákveðnum stefnumálum flokka sinna. Allt þetta hlýtur að fara til skoðunar í framhaldinu og til málefnalegrar umfjöllunar þegar farið verður að vinna að þessari aðgerðaáætlun í einstökum ráðuneytum eða í samráðsnefndinni. Þess vegna er mikilvægt að þetta hafi komið fram hér í dag. Það eru auðvitað mörg mál sem ekki hafa verið rædd en það þýðir ekki að þau komi ekki til skoðunar í framhaldsvinnunni.

Ef ég fer aðeins yfir þau atriði sem hafa komið fram og ástæða er til að minnast örlítið á og fjalla um úr ræðum einstakra þingmanna, þá ræddi hv. þm. Álfheiður Ingadóttir um áhyggjur sínar af afstöðu Sjálfstæðisflokksins til málsins. Ég held að menn þurfi ekkert að hafa áhyggjur af því, það hefur komið skýrt fram að þetta mál er lagt fram af þingflokkunum sameiginlega og stjórnarflokkunum. Þeir standa sameiginlega að málinu heils hugar.

Þá kom fram í máli hv. þingmanns að kannski hefði þurft að fjalla betur um kjör umönnunarstétta og þeirra sem eru að fjalla um málefni barna. Ég tek heils hugar undir það í sjálfu sér að muna þurfi eftir því en bendi á að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er sérstakt ákvæði um það og auðvitað treystum við á að því verði fylgt eftir. Sama gildir um samstarf við sveitarfélög sem rætt var um og það skilaði sér líka mjög vel í nefndinni og kemur fram í nefndarálitinu. Það segir sig sjálft að margt af því sem hér er verið að boða og þarf að koma til framkvæmda þarf að vinnast í mjög nánu samstarfi við sveitarfélögin og í einhverjum tilvikum verður örugglega að skoða tekjuskiptinguna á milli þessara aðila eins og hefur líka komið fram annars staðar að gert verður.

Það er líka ágæt ábending sem ég vil halda til haga sem kom kannski ekki fram þarna en hefur komið fram í umræðunni og það er um að raddir barna og unglinga heyrist. Það er sá lýðræðislegi þáttur að þessir aðilar hafa auðvitað heilmikið til málanna að leggja og ég vil taka undir þau orð og vona að það komi fram í allri vinnunni að þetta er gríðarlega verðmætur hópur til að leita skoðana hjá. Get ég talað þar af mikilli reynslu hafandi notað þá aðferð oft í starfi mínu að leita til barna og alltaf hafa þau bætt málin þar sem þau hafa um fjallað.

Hv. 9. þm. Norðvest., Kristinn H. Gunnarsson, gerði húsnæðismálin að umtalsefni og vildi að við lykjum húsnæðisstefnu ríkisstjórnarinnar í aðgerðaáætluninni. Ég held að það sé nú ofætlan að slík þingsályktunartillaga taki á þeim málaflokki eins og hann leggur sig. En það hefur komið fram í umræðunni mjög skýr afstaða varðandi Íbúðalánasjóð. Það hefur komið fram bæði hjá hæstv. félagsmálaráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur og einnig hjá hæstv. fjármálaráðherra. Það stendur ekki til í sjálfu sér að selja eða breyta Íbúðalánasjóði að öðru leyti því sem við verðum neydd til í samræmi við þær kröfur sem koma frá EFTA og ESA. Þessum málaflokki verður að sjálfsögðu sinnt með eðlilegum hætti en það kemur fram í nefndarálitinu að húsnæðismálin er auðvitað kostnaðarliður sem hefur veruleg áhrif á framfærslu barnafjölskyldna og þarf að skoðast sem slíkur.

Sama gildir um tekjumismun milli landsbyggðar og höfuðborgar og áhrif þessa tekjumismunar á stöðu barna, eins og hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson kom réttilega inn á. Þetta er einnig mjög skýrt ákvæði í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og engin ástæða til ætla annað en að reynt verði að sinna því, sérstaklega að jafna stöðuna fyrir landsmenn alla.

Hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson gerði einnig áfengismálin að umræðuefni. Ég get í sjálfu sér tekið undir obbann af því sem þar kom fram. Þó verð ég að segja að mér fannst lítið gert úr áhrifum fræðslu, þó að vitnað sé í að hún ein og sér ráði ekki því hvort menn drekki áfengi eður ei. Það er auðvitað vitað að þekkingin ein hindrar ekki athafnir en það má alls ekki gera lítið úr því að tekist hefur að minnka áfengisneyslu í grunnskólum og það hefur verið gert með samstilltu átaki foreldra og starfsfólks skólanna og m.a. Lýðheilsustöðvar. Ég held að fræðslu- og uppeldisþátturinn í þessu sé stórlega vanmetinn. Næsta skrefið varðandi áfengisneysluna er auðvitað viðhorfsbreyting og aukin fræðsla og áróður einmitt til að móta viðhorf nemenda á fyrstu árum í framhaldsskólunum.

Varðandi meðferðina á skjalinu sem slíku, eins og hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson ræddi um, að það sé óeðlilegt að gera ekki textabreytingar, þá gerði ég grein fyrir því í inngangsræðu að ég mæti það svo að hægt hefði verið að fara í textabreytingar í þingsályktunartillögunni en mikilvægara væri þó að draga saman þau atriði sem við teldum að þyrftu að koma til umfjöllunar. Það var heiðarlega gert í samráði við alla nefndarmenn, enda held ég að allir nefndarmenn í félags- og tryggingamálanefnd geti séð í nefndarálitinu mörg þeirra atriða sem þeir lögðu til í umræðunni.

Hv. þm. Höskuldur Þórhallsson, 10. þm. Norðaust., telur þetta ekki vera aðgerðaáætlun heldur bara viljayfirlýsingu og það má svo sem deila um orð. Ef menn telja að aðgerðaáætlun þurfi að vera tölusett eða markmiðssett sem einhvers konar skorkort þá er það vissulega rétt að þetta mundi ekki heita aðgerðaáætlun en þarna er klárlega lýst yfir hvaða aðgerðum á að beita í málefnum barna og ungmenna og þess vegna tel ég að þessi áætlun standi fyllilega undir nafni. Þó að útfærslurnar séu ekki í öllum smáatriðum á þessu stigi nú á sumarþinginu þá eru þetta skýr fyrirmæli um hvaða vinnu á að setja í gang og hvaða málum við munum eiga von á inn þingið í framhaldinu.

Hv. þm. Auður Lilja Erlingsdóttir óskaði eftir því að margt væri afdráttarlausara og auðvitað væri það kannski æskilegt í sumum tilfellum en það er kannski vísun á það að þessi mál þurfa að fá umfjöllun, m.a. frá börnum eins og hv. þingmaður benti réttilega á. Hv. þingmaður benti líka réttilega á ósanngirni í samfélaginu og það að við setjum sum börn skör lægra vegna fátæktar eða annarra hluta, aðgengi að þjónustu sé takmarkað og annað slíkt, og þessu óréttlæti finni börn fyrir. Ég tek heils hugar undir það. Þess vegna er aðgerðaáætlunin svo mikilvæg. Hún er til að rétta hlut barna og tryggja að þau fái ekki ranga forgjöf inn í okkar ágæta samfélag.

Hv. þm. Pétur H. Blöndal, 6. þm. Reykv.n., samnefndarmaður, dró fram nokkur atriði sem komu ágætlega fram í málefnavinnunni líka. Það er auðvitað ávallt umdeilanlegt hvernig á að skilgreina fátækt en ég held að það sé enginn ágreiningur um það að fátækt er til staðar og við þurfum að vinna gegn henni og eyða henni og það skiptir auðvitað mestu máli.

Ég vil ekki taka eins sterkt til orða og hv. þingmaður varðandi það að við viljum ekki ræða fíkn eða vandamál barna fíkniefnaneytenda. Ég vil gjarnan að það verði rætt og ég vil gjarnan að það verði tekið upp í aðgerðaáætluninni, þ.e. í vinnunni við hana. Þetta er hópur sem situr ekki við sama borð og aðrir og við þurfum auðvitað að ræða það mjög alvarlega og reyna að leita lausna sem eru ekki auðfundnar eins og fram hefur komið.

Ég gæti haldið áfram að taka upp einstök mál og fylgja þeim eftir hér í lokaræðu minni um þessa þingsályktunartillögu. Ég held að ekki sé ástæða til þess, ég held að mörg af þeim málum sem huga þarf að hafi komið mjög skýrt fram í umræðunni. Vonandi fáum við tækifæri til að koma að þessu á síðari stigum í umfjöllun um einstaka þætti málsins.

Ég ætla aðeins að segja í lokin að mér finnst stórkostlegt að þessi aðgerðaáætlun í málefnum barna og ungmenna skuli vera komin fram og ég hlakka til að takast á við að koma henni í framkvæmd í framhaldinu.