134. löggjafarþing — 8. fundur,  12. júní 2007.

Stjórnarráð Íslands.

1. mál
[18:44]
Hlusta

Frsm. meiri hluta allshn. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ekki ætla ég að andmæla meginsjónarmiðum lýðveldissinna í þessari umræðu. En ég vil þó geta þess að mér finnst mikils virði að fá tækifæri til að starfa í sögufrægu húsi sem heldur þeim einkennum sem á því voru þegar það var reist. Ég tel að það varði ekki innihald þeirra starfa sem við höfum hér með höndum.

Nokkur atriði í ræðu hv. þm. Jóns Magnússonar vildi ég þó geta sérstaklega um. Í fyrsta lagi vil ég, vegna vangaveltna hans um óeðlilegt framsal valds til forsætisráðherra, geta þess að það er ekki óþekkt að löggjafinn veiti ráðherrum reglugerðarheimild til að setja nánari fyrirmæli um framkvæmd tiltekinna ákvæða. Ég hygg að þetta tiltekna ákvæði skeri sig í engan hátt frá því. Það er nokkuð ljóst að forsætisráðherra hlýtur við setningu slíkra reglna vera bundinn af meginreglum í stjórnsýslurétti. Ég held að enginn þurfi að draga það í efa. Orðalagið sem þarna er er ekki mjög frábrugðið orðalagi sem varðar sambærilega hluti, t.d. í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þar sem segir m.a. í 2. mgr. 7. gr.:

„Önnur störf skulu auglýst opinberlega„ — þ.e. önnur störf en embætti, sem eru sérstaklega skilgreind — „samkvæmt reglum sem settar skulu af fjármálaráðherra. Forstöðumanni stofnunar er heimilt að setja sérreglur um það hvernig auglýsa skuli störf hjá stofnuninni, enda sé það gert opinberlega og reglurnar hljóti staðfestingu fjármálaráðherra. Í reglum samkvæmt þessari málsgrein má mæla svo fyrir að störf þar sem ekki er krafist tiltekinnar sérmenntunar eða sérhæfingar þurfi ekki að auglýsa opinberlega.“

Það eru ekkert nánari fyrirmæli um það hvernig þetta varðar. Við setningu ákvæða af þessu tagi held ég að það sé alveg óþekkt að sérstök fyrirmæli séu um tímafrest sem ráðherra hafi til að segja reglurnar. Það er bara ætlast til að það sé gert svo fljótt sem auðið er.