134. löggjafarþing — 8. fundur,  12. júní 2007.

Stjórnarráð Íslands.

1. mál
[18:48]
Hlusta

Frsm. meiri hluta allshn. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Varðandi það hvort hér er um óeðlilegt framsal valds að ræða eða ekki þá vísa ég til þess að við höfum lengi haft í gildi lög sem fela fjármálaráðherra reglusetningarvald með mjög svipuðum hætti og hér er orðað og mér er ekki kunnugt um að það hafi nokkurn tíma verið ágreiningur um það að framsal samkvæmt því ákvæði sem ég vitnaði til í starfsmannalögunum stæðist stjórnarskrá. Ég deili ekki áhyggjum hv. þingmanns af þessu tiltekna atriði.

Ég vek líka athygli á því, og vík þá að öðru atriði sem kom fram í ræðu hv. þm. Jóns Magnússonar, að með því að segja með skýrum hætti í lagaákvæðinu að setja skuli reglur um þetta efni þá er auðvitað verið að stíga stórt skref til þess að tryggja að það séu fyrir hendi einhverjar málsmeðferðarreglur um ráðningu í stöður á forsendum þessa ákvæðis. Það komu fram athugasemdir í meðförum nefndarinnar um að þetta væri ella í lausu lofti og hætta væri á einhverjum geðþóttaákvörðunum þar sem ráðherrar eða eftir atvikum aðrir stjórnendur í ráðuneytum gætu ráðið menn í störf án þess að um það giltu einhverjar málsmeðferðarreglur. Með þessari breytingu er verið að koma verulega til móts við þessi sjónarmið. Það munu gilda um þetta reglur sem verða fyrirliggjandi og öllum ljósar. Það er jafnframt gert ráð fyrir að þeim sem eiga kost á að sækja um störf á grundvelli þessa ákvæðis, þ.e. starfsmönnum Stjórnarráðsins, verði tilkynnt um það með tryggum hætti. Þó að við mælum ekki nákvæmlega fyrir um það með hvaða aðferð það verði gert þá verði tryggt að það verði auglýst í hópi þeirra sem eiga rétt á að sækja um samkvæmt þessu ákvæði þannig að það er búið að koma til móts við allar þær forsendur, um gagnsæi og vitneskju manna um lausu störfin, og áhyggjur manna að þessu leyti. Hins vegar er rétt að það er ágreiningur um það hvort hafa eigi þessa heimild til þess að horfa sérstaklega til starfsmanna Stjórnarráðsins eða ekki. En það er hins vegar komið til móts við áhyggjur sem hafa komið fram af þessum tilteknu þáttum.