Stjórnarráð Íslands.
Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns í umræðu um það frumvarp sem hér er á dagskrá, frumvarp til laga um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, leyfa mér að gera athugasemd við það tómlæti sem hæstv. ráðherrar sýna málinu með því að vera ekki viðstaddir 2. umr. frumvarpsins. Mér hefur skilist að 2. umr. um lagafrumvörp sé yfirleitt meginumræðan um þau og ég verð að segja að það er undarlegt að ráðherrar skuli ekki sýna frumvarpi um Stjórnarráð Íslands meiri áhuga en raun ber vitni. Ef þeir eru orðnir svona leiðir á starfi sínu er ég sannfærður um að margir gætu hugsað sér að leysa þá af hólmi ef út í það væri farið og væru reiðubúnir til að sitja hér í þinginu undir umræðu um Stjórnarráðið. Þetta er sérstaklega bagalegt þegar haft er í huga að mörg atriði hafa komið fram í umræðunni, í máli ræðumanna, í nefndarálitum, bæði frá meiri hluta og minni hluta, og í umsögnum sem hafa komið um málið til nefndar, sem vekja upp spurningar og sem áhugi er á að beina til hæstv. ráðherra. Þar er ég kannski fyrst og fremst að hugsa um flutningsmann frumvarpsins, hæstv. forsætisráðherra, en líka mætti nefna formann hins stjórnarflokksins, hæstv. utanríkisráðherra, og svo kannski þá ráðherra sem sérstaklega er verið að fjalla um í lagafrumvarpinu. Það eru hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, heilbrigðisráðherra og félagsmálaráðherra, en hann fer m.a. með vinnumarkaðsmál sem einn angi af þessu máli tengist.
Ég vil því leyfa mér að koma því á framfæri, herra forseti, að óánægja er með það að hæstv. ráðherrar skuli ekki taka þátt í umræðunni og mér finnst mikilvægt að þeim skilaboðum sé komið á framfæri við ráðherrana. Þó er ekki öll nótt úti enn því að sjálfsögðu er hægt að ræða þetta mál frekar við 3. umr. og óska þá eftir svörum frá ráðherrum við þeim spurningum sem kunna að vakna. Ég vænti þess að ráðherrarnir verði viðstaddir þá umræðu, enda væntanlega einhverjar atkvæðagreiðslur í tengslum við þann fund á hv. Alþingi. Þetta vildi ég láta koma fram í upphafi.
Ég ætla að fjalla aðeins efnislega um einstaka greinar í lagafrumvarpinu og verður vafalaust sumt tilefni til meiri umræðu en annað í því efni. Fyrst verður fyrir 1. gr. frumvarpsins þar sem gerðar eru tillögur um breytingar á 4. gr. laganna um Stjórnarráð og það er nafnbreytingin í fyrsta lagi, en þar segir, með leyfi forseta: „Í stað orðsins „félagsmálaráðuneyti“ í 1. mgr. kemur: félags- og tryggingamálaráðuneyti.“
Í annan stað er verið að leggja til að orðin „Hagstofa Íslands“ í falli brott. Í stað orðanna „heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti“ í kemur: heilbrigðisráðuneyti. Orðið „landbúnaðarráðuneyti“ í fellur brott. Í stað orðsins „sjávarútvegsráðuneyti“ í kemur: sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Ég ætla að geyma mér umræðuna um f-liðinn þar til aðeins síðar.
Nú má vissulega segja að um þessar breytingar er kannski ekkert stórvægilegt að segja í sjálfu sér. Þó hafa komið fram í umræðunni athyglisverðar ábendingar. Til að mynda kom fram í máli hv. 10. þm. Suðvest., Sivjar Friðleifsdóttur, ábending um að sérkennilegt væri að leggja til á þessum tímapunkti að félagsmálaráðuneytið fengi heitið félags- og tryggingamálaráðuneyti þegar ekki lægi fyrir hvaða þættir tryggingamálanna það væru sem ættu að flytjast úr heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti yfir í félagsmálaráðuneyti. Þegar á það er m.a. bent að í raun kunni svo að vera að minni hluti tryggingamálanna fari úr heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti yfir í félagsmálaráðuneyti, þá verður þessi nafnbreyting enn þá sérkennilegri. Nema að sjálfsögðu að það liggi fyrir einhvers staðar annars staðar en í sölum Alþingis að það verði stærri hluti tryggingamálanna sem fari.
En það hefur ítrekað verið farið fram á það, og það var gert þegar hæstv. forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpinu, að fá upplýsingar um hvaða breytingar væru fyrirhugaðar á Stjórnarráðinu aðrar en þær sem liggja fyrir í því frumvarpi sem er til umræðu. Við þá umræðu var ítrekað sagt af hálfu hæstv. forsætisráðherra og fleiri að miðað við núgildandi lög væri hægt að breyta verkefnum milli ráðuneyta með einfaldri reglugerðarbreytingu. Þess vegna væri ekki þörf á að ræða þau mál hér í þingsal heldur einungis það sem lyti að breytingum á lögunum sjálfum.
En staðreyndin er engu að síður sú að fyrirhugaðar eru mjög umfangsmiklar breytingar á skipan Stjórnarráðsins. Það sem við sjáum þessu í frumvarpsformi er aðeins toppurinn af þeim ísjaka. Þess vegna er mjög eðlilegt að þingmenn vilji fá upplýsingar um það og skýr svör hvaða breytingar eru í vændum. Sérstaklega þegar við höfum í huga það sem áformað er að gera með f-lið 1. gr. Það er skiljanlegt og málefnalegt að óska eftir því að þetta liggi fyrir.
Þessu máli tengist kannski líka annað mál sem er þegar afgreitt á þinginu, fyrstu lögin sem þetta þing hefur samþykkt, lögin um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis. Í þeirri umræðu kom fram að eðlilegt væri að þingið skipaði málum sínum í samræmi við skipan Stjórnarráðsins. Þess vegna þurfti að breyta þingskapalögum til þess að kveða á um hvernig nefndir væru skipaðar, hvað þær hétu og hvaða verkefni væri þá verið að fjalla um í þessum tilteknu nefndum.
Í þeirri umræðu var í raun sagt: Nefndirnar á Alþingi eiga að taka mið af þeirri málefnaskiptingu sem á við í Stjórnarráðinu. Ef það er svo þá er eðlilegt að þingið fjalli um það. Þingið á auðvitað að ráða málum sínum sjálft. Þingið á að ráða því hvernig þingsköpin eru, hvaða nefndir eru og hvaða málaflokkar heyra undir hverja nefnd. En ef það er þannig sem mátti skilja á umræðunni í upphafi að þingnefndirnar ættu að taka mið af ráðuneytaskiptingunni, þá verðum við að sjálfsögðu að fá að vita hvernig skiptingin í Stjórnarráðinu á að vera. Ekki bara það sem segir í lögunum um Stjórnarráð heldur að sjálfsögðu í reglugerðinni líka. Annars væri bara hægt að segja: Þingið ræður málum sínum á eigin forsendum og hefur þær nefndir sem það vill hafa. Og þá hefði ekki þurft að koma til þetta frumvarp um breytingu á þingsköpum Alþingis út af fyrir sig. Menn hefðu að sjálfsögðu getað haft þær nefndir sem áður voru í þeim lögum og vísað málum til þeirra eftir því sem henta þótti. Má í því sambandi líka minna á að ekki er fordæmalaust að þingnefndir séu að taka við málum frá fleiri en einum ráðherra. Mun það t.d. eiga við um hv. allsherjarnefnd og átti væntanlega við um efnahags- og viðskiptanefnd þegar hún var og hét.
Nei, það er sem sagt hægt að færa rök fyrir því að þessar breytingar á heitum ráðuneytanna séu illa ígrundaðar og sérstaklega með félagsmálaráðuneytið og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Þó er engin sérstök ástæða til að gera mikið veður út af því ef ríkisstjórnin kýs að hafa þetta með þessum hætti, þá skyldi maður ætla að því fylgdi að verulegur hluti tryggingamálanna væri að fara yfir í félags- og tryggingamálaráðuneytið úr því að það á að verða heiti hins nýja ráðuneytis.
Í b-lið 1. gr. er talað um Hagstofu Íslands og lagt til að hún verði felld niður sem ráðuneyti og verði sérstök stofnun, væntanlega undir forsætisráðuneyti. Um það er ósköp lítið að segja og ég hygg að enginn ágreiningur sé um það. Það er tímabært að Hagstofa Íslands sé ekki lengur ráðuneyti og skipan hennar verði á þann hátt sem hér er lagt til.
Varðandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið kom fram í 1. umr. um málið og hefur komið fram í viðhorfum stjórnmálaflokkanna lengi, held ég megi segja, að skynsamlegt væri að sameina ráðuneyti eða málaflokka atvinnuveganna í eitt ráðuneyti. Þar hafa sjávarútvegsráðuneytið og landbúnaðarráðuneytið verið að sjálfsögðu til umræðu og einnig iðnaðarráðuneytið og viðskiptaráðuneytið. Ferðamál sem heyra undir samgönguráðuneytið, ferðaþjónustan o.s.frv. Þessi breyting er í raun og veru lágmarksbreyting ef svo má segja. En þá komum við aftur að því að boðaðar hafa verið frekari breytingar en þetta frumvarp segir til um. Þá á ég við að því hefur verið kastað fram í fjölmiðlum, haft eftir oddvitum stjórnarflokkanna, að gera eigi t.d. þá breytingu að landgræðslan og skógrækt fari úr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti í umhverfisráðuneytið og menntamál landbúnaðarins fari úr því ráðuneyti og yfir í menntamálaráðuneytið.
Um þetta eru áreiðanlega skiptar skoðanir. Það eru áreiðanlega kostir og gallar við hvort tveggja. Ég er t.d. ekki sannfærður um að landbúnaðarskólunum verði greiði gerður með því að flytja þá undir menntamálaráðuneytið. Ég hef svo sem enga sannfæringu fyrir því heldur að þeir megi ekki vera þar, því það er alveg hægt að færa sannfærandi rök fyrir því að háskólar á landbúnaðarsviði eigi að heyra undir menntamálaráðuneyti eins og aðrar fræðslustofnanir.
En ég veit líka um mjög marga sem telja að það hafi verið styrkur þessara skóla sem eru svo mjög tengdir atvinnuveginum að heyra undir það ráðuneyti sem fer með málefni viðkomandi atvinnugreinar. Þau sjónarmið eru áreiðanlega uppi. Það væri fróðlegt að vita hvaða sjónarmið greinin sjálf hefur, bæði skólarnir og atvinnugreinin sjálf hefur til þessara álitamála.
Varðandi landgræðslu og skógrækt var farið ágætlega yfir það í 1. umr. málsins, m.a. af hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur, að í raun mætti líta á landgræðslu og skógrækt bæði sem umhverfismál og sem atvinnuveg. Það væri eðlilegt að hugsa skiptinguna frekar út frá því að sá þáttur þeirra mála sem eru sannarlega umhverfismál séu undir umhverfisráðuneyti og sá þáttur sem sannarlega er atvinnumál heyri undir atvinnuvegaráðuneytið. Þannig má auðvitað taka fleiri málaflokka en landgræðslu og skógrækt. Þarna mætti t.d. taka auðlindanýtinguna almennt. Við gætum verið að tala um málefni sjávarútvegsins. Tökum t.d. Hafrannsóknastofnun sem oft hefur verið rætt um að ætti gjarnan heima undir umhverfisráðuneyti enda þótt stjórn fiskveiðanna, ákvörðun um það hvernig aflaheimildum er úthlutað o.s.frv. sé á hendi atvinnuvegaráðuneytis. Þannig eru orkumálin til að mynda. Mörg rök eru fyrir því að orkumálin séu að hluta til umhverfismál og að hluta til atvinnugreinin.
Við höfum talað fyrir því, vinstri græn, að umhverfisráðuneytið verði sérstaklega styrkt og eflt, m.a. með þetta að leiðarljósi, þannig að auðlindanýtingin heyri í raun undir umhverfisráðuneytið enda þótt atvinnustarfsemin sem tengist auðlindanýtingunni sé á hendi atvinnuvegaráðuneytis. Fyrir þessu eru mörg fordæmi, m.a. að því er varðar orkumálin. Orkumálin í Svíþjóð heyrðu a.m.k. í eina tíð undir umhverfisráðuneyti, ég veit ekki hvort því hefur verið breytt í seinni tíð en á sínum tíma voru umhverfis- og orkumálaráðuneyti eitt og sama ráðuneytið.
Herra forseti. Ég fór við 1. umr. um þetta mál aðeins yfir þær áherslur og sjónarmið sem ég vildi koma á framfæri í þessari umræðu og ég ætla aðeins að rifja upp nokkur atriði í því sambandi. Í tengslum við breytingu á Stjórnarráðinu erum við auðvitað að tala um meira en frumvarpið segir til um eins og ég hef þegar sagt. Þar erum við að tala um það sem kom fram í almennri umræðu og á blaðamannafundi formanna stjórnarflokkanna í kjölfar myndunar nýrrar ríkisstjórnar þar sem talað var um miklu fleiri mál en hér ber á góma. Þar var t.d. talað um að sveitarstjórnarmál flytjist frá félagsmálaráðuneyti til samgönguráðuneytis. Um þetta eru áreiðanlega líka mjög deildar meiningar. Mörgum finnst kyndugt að sjá sveitarstjórnarmálin undir samgönguráðuneytinu en í umræðunni í dag hefur verið bent á að þau eigi mjög góða samleið með málefnum sem félagsmálaráðuneytið fjallar um. Á það er bent að málefni eins og málefni fatlaðra og aldraðra séu að fara frá ríki til sveitarfélaga eða það er stefnan eins og málum er háttað í dag, stefnan er að þessir málaflokkar færist til sveitarfélaganna, þannig að umfangsmiklir málaflokkar á sviði velferðarmála verði á hendi sveitarfélaganna og þess vegna sé kyndugt að færa þann málaflokk úr félagsmálaráðuneytinu yfir í samgönguráðuneytið.
Ég hef haldið því fram, ég gerði það í 1. umr. og ætla að ítreka það hér að sveitarstjórnarmálin og byggðamálin eigi að heyra saman. Það eru engin haldbær rök fyrir því að vista byggðamál í iðnaðarráðuneyti og sveitarstjórnarmál í samgönguráðuneyti eins og umræðan er núna. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir sveitarfélögin að tengjast málum sem lúta að byggðaþróun vegna þess að sveitarfélögin eru að sýsla með uppbyggingu mikilvægrar samfélagsþjónustu í þeim tilgangi að búa íbúunum góðar aðstæður til uppvaxtar, til menntunar, til búsetu, til atvinnu og einmitt þessi atriði eru undirstöður heillavænlegrar byggðaþróunar í landinu. Sveitarfélögin eiga gríðarlega mikið undir því að byggðaþróunin sé jákvæð og stefna í byggðamálum hlýtur að ganga út á það að efla sveitarfélögin til að takast á við þau verkefni sem þau eru að takast á við og færa meira af ákvörðunum heim í hérað. Þannig tengjast byggðamálin og sveitarstjórnarmálin að mínu viti órjúfanlegum böndum.
Þannig er þessu til að mynda háttað víða í kringum okkur þar sem ég hef kynnt mér, m.a. í Finnlandi, Noregi, Írlandi og Englandi og að vissu marki líka í Þýskalandi þar sem stjórnsýslan er að vísu frábrugðin að því leyti til að þar er þriðja stjórnsýslustigið, löndin svokölluðu, afar sterk og með mikið af málum hjá sér eins og t.d. byggðaþróunarmál sem ekki er með sama hætti hér og annars staðar. Þannig er þessum málum t.d. farið hjá Evrópusambandinu og verst að hér skuli ekki vera neinn þingmaður Samfylkingarinnar að hlusta á það en það er einmitt þannig hjá Evrópusambandinu að sveitarstjórnarmál og byggðamál eru tekin saman undir einum og sama framkvæmdastjóra einmitt vegna þess hvernig þau tengjast.
Í mínum huga væri það því mjög mikilvæg breyting að færa saman byggðamálin og sveitarstjórnarmálin. Þótt þau væru eitt ráðuneyti eða væru vistuð með öðrum málaflokkum, svo sem félagsmálum eða samgöngumálum, finnst mér kannski ekki aðalatriðið í þessu samhengi. Það má vel færa rök fyrir því að samgöngumál séu líka mikilvæg í tengslum við byggðaþróun og uppbyggingu byggðarlaganna og sveitarfélaganna. Kannski er það þannig í dag að almennar samgöngur, fjarskipti og slíkir hlutir séu það sem mestu máli skiptir fyrir uppbyggingu byggða og þess vegna er alveg hægt að færa rök fyrir því að samgönguráðuneytið fari með þessi mál en þá tel ég byggðahlutann vanta í þær hugmyndir og þá hugsun sem hefur verið viðruð af hálfu forustumanna stjórnarflokkanna.
Ég hef þegar nefnt umhverfisráðuneytið, okkar sýn á það að mikilvægt sé að styrkja hugsunina um sjálfbæra þróun, svona heildarsýn á umhverfismál á grundvelli hugmyndafræðinnar um sjálfbæra þróun, rannsóknir á náttúruauðlindum lands og sjávar og verndun þeirra og áætlanir um nýtingu, að þær séu á forræði umhverfisráðuneytisins sem við mundum gjarnan vilja kalla umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
Ég ætla líka að koma aftur og betur að atvinnuvegaráðuneytinu og þeirri hugsun sem birtist í því frumvarpi sem hér er til umræðu um að sameina landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti. Raunar fannst mér hv. 10. þm. Suðvest., Siv Friðleifsdóttir, fara prýðilega yfir það þegar hún rakti eða hrakti ætti ég öllu heldur að segja röksemdir hæstv. forsætisráðherra þegar hann sagði í 1. umr. um málið að fallið hefði verið frá því eða ekki tekið það skref núna að leggja til eitt atvinnuvegaráðuneyti vegna þess að það yrði svo risavaxið. Hv. þm. Siv Friðleifsdóttir fór hér prýðilega yfir það, m.a. með hliðsjón af starfsmannafjölda þessara ráðuneyta, að atvinnuvegaráðuneyti þar sem sameinuð væru landbúnaðarráðuneytið, sjávarútvegsráðuneytið, iðnaðarráðuneytið og viðskiptaráðuneytið væri alls ekkert svo risavaxið í samanburði við ýmis önnur ráðuneyti nema síður væri. Þá vaknar sú spurning og gerist áleitin: Hvers vegna í ósköpunum var sú leið þá ekki farin?
Ég held að svarið sé í raun og veru býsna skýrt og ljóst öllum sem það vilja vita: Það þurfti að tryggja jafnmarga ráðherrastóla fyrir báða stjórnarflokkana. Sjálfstæðisflokkurinn gat að sjálfsögðu ekki fækkað í ráðherraliðinu hjá sér og þar með varð Samfylkingin að fá jafnmörg ráðuneyti, jafnmarga ráðherrastóla öllu heldur. Þá var farið í þennan leik. Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti voru sameinuð vegna þess að það var eitthvað sem flokkarnir höfðu talað mikið um og vafalaust hefur Samfylkingin lagt á það áherslu að koma landbúnaðarráðuneytinu með einhverju móti undir eitthvað annað og ekki hafa það eitt og sér. Þá varð að grípa til þess úrræðis að taka iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, sem raunar eru tvö ráðuneyti samkvæmt lögum í dag en hafa verið rekin sem eitt ráðuneyti, líklega um 20 ára skeið eða allt að því, og skipta því upp á milli tveggja ráðherra. Og það er svo komið að hæstv. iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson tekur við væntanlega fámennasta ráðuneytinu, iðnaðarráðuneytinu, sem einhverjir hafa viljað kalla örráðuneyti, og leggst þá nú lítið fyrir þennan fyrrverandi formann Samfylkingarinnar.
Ég ræddi um það við 1. umr. að í raun og veru væri ekkert vandamál að leggja niður iðnaðarráðuneytið með skynsamlegum breytingum á Stjórnarráðinu. Ef við t.d. flyttum byggðamálin og létum þau vera með sveitarstjórnarmálunum, t.d. í samgönguráðuneytinu ef menn kjósa það, ef menn tækju ákvörðun um það að efla umhverfisráðuneytið á markvissan hátt þannig að það yrði umhverfis- og auðlindaráðuneyti og byggju síðan til eitt atvinnuvegaráðuneyti þá væri búið að hluta iðnaðarráðuneytið niður á þessa málaflokka í þessi ráðuneyti og þá væri hægt að leggja það niður. En það mundi augljóslega leiða til þess að ráðherrastólum Samfylkingarinnar fækkaði um einn og það var væntanlega eitthvað sem ekki gekk upp. Ég held, virðulegur forseti, að þegar á allt er litið blasi það við að þær breytingar sem hér er verið að ræða um þjóna þeim tilgangi einum að passa fyrir þessa tvo stjórnarflokka.
Það er líka undarlegt að í vetur lýsti hæstv. forsætisráðherra áhuga á því að ná pólitískri samstöðu um breytingar á Stjórnarráðinu en sagði jafnframt að af því hefði ekki getað orðið á síðasta þingi vegna þess að ekki hefði náðst nægilega mikil pólitísk samstaða í því efni. Nú bregður hins vegar svo við að þegar Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafa myndað sína ríkisstjórn eða tekið ákvörðun um að mynda hana þá er ekkert að vanbúnaði að lýsa því yfir að farið verði í uppstokkun á ráðuneytum og kynnt hér til sögunnar frumvarp sem tekur á afar afmörkuðum þætti málsins en jafnframt látið að því liggja að það verði farið í umfangsmeiri uppstokkun. Þá er skyndilega ekki þörf á því að hafa neitt samráð við aðra stjórnmálaflokka um það efni. Þó hygg ég að flestir séu sammála því í grundvallaratriðum að það ríki sæmilega breið pólitísk sátt um skipan stjórnsýslunnar, Stjórnarráðsins, alveg eins og með starfshætti á Alþingi. Það er ekki gott að mikið sé verið að róta í því fyrirkomulagi. Ég verð því að segja að ég harma það að ekki skyldi hafa verið leitað breiðrar pólitískrar samstöðu og heildarendurskoðunar á Stjórnarráðinu þannig að öll sjónarmið gætu a.m.k. komist á framfæri.
Nú er rétt að geta þess að hæstv. forsætisráðherra sagði í andsvari við ræðu minni í 1. umr., með leyfi forseta:
„Með öðrum orðum, það er ekki útilokað að við getum orðið sammála um einhverjar fleiri breytingar þegar líður á haustið.“
Ég túlka það þannig og skil það svo að hæstv. forsætisráðherra muni a.m.k. kynna sér þau sjónarmið sem koma fram í umræðunni hér, að jafnvel þótt hann sé ekki viðstaddur umræðuna sjálfa muni hann kynna sér þau sjónarmið sem hér hafa komið fram. Auðvitað gerði hann réttast í því að mínum dómi að óska eftir samstarfi stjórnmálaflokkanna um þá endurskoðun sem væntanlega fer fram í sumar, því að það er boðað að hér komi aftur frumvarp í haust vegna þess að gera þurfi ýmsar breytingar á einstökum lögum, sérlögum, með tilliti til þeirrar verkaskiptingar sem fyrirhuguð er.
Hv. 9. þm. Reykv. s., Birgir Ármannsson, formaður allsherjarnefndar, sagði í umræðu um málið fyrr í kvöld að það væri eðlilegt að móta meginstefnuna fyrst. Ég skil hann þannig að hann líti svo á að með því frumvarpi sem hér liggur fyrir með þessum breytingum sé verið að móta ákveðna meginstefnu. Ég verð að segja fyrir mína parta að ég tel að hér sé í raun og veru ekki verið að móta neina meginstefnu þegar fyrir liggur að fara á í miklu viðameiri breytingar á skipan Stjórnarráðsins. Þannig er ljóst að það eru mjög margir, til að mynda starfsmenn Stjórnarráðsins, sem eru í fullkominni óvissu um hvað tekur við hjá þeim um áramót, hvar þeir verða vistaðir. Meginstefnan er sem sagt ekki skýrari en svo að það eru einungis gerðar þessar lágmarksbreytingar á félagsmála-, heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti og landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti. Enn þá er margt óljóst í þessu efni, óvissan að sjálfsögðu mikil varðandi verkaskiptinguna og að sjálfsögðu varðandi starfsumhverfi starfsmanna. Nóg um þetta.
Í f-lið 1. er er lagt til að heimilt verði að sameina ráðuneyti með úrskurði forseta Íslands. Ég varaði í 1. umr. við því að þetta ákvæði yrði sett í lög með þeim hætti. Meginrökin eru þau að auðvelda eigi framkvæmdarvaldinu að sameina ráðuneyti en ekki að gera framkvæmdarvaldinu kleift að fjölga ráðuneytum nema með lögum. En það á að auðvelda framkvæmdarvaldinu að sameina þau með einföldum forsetaúrskurði fyrir atbeina forsætisráðherra.
Ég er þeirrar skoðunar að þarna yrði lagasetningarvaldið í raun framselt vegna þess að samkvæmt lögunum um Stjórnarráð skal tiltekið hve mörg ráðuneytin eru og hvað þau heita. Þannig birtast lögin þeim sem vilja kynna sér þau, m.a. í lagasafni, en síðan er hægt að breyta ákvæðum þessara laga með einföldum forsetaúrskurði. Þá skiptir í raun engu máli hvort það væri til að fjölga ráðuneytum eða fækka því að gerningurinn er sá sami eðli málsins samkvæmt, hvort menn fækka eða fjölga ráðuneytum. Ég tel að það eigi að gilda sömu reglur um hvort tveggja. Það er ekkert ofverk einnar ríkisstjórnar að leggja fram frumvarp á Alþingi og gera breytingar á skipan Stjórnarráðsins ef hún svo kýs. Í mínum huga á þetta að vera bundið í lögunum.
Ég er hins vegar sammála því fyrirkomulagi sem verið hefur, að einstökum málaflokkum sé skipað með reglugerð sem forsætisráðherra setur, eins og nú er. En ráðuneytin sjálf ættu að vera tilgreind í lögum, fjöldi þeirra og heiti, og því verði aðeins breytt með lögum. Ég tel að það hafi verið skynsamleg rök sem lágu þar á bak við þegar fyrrv. forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, beitti sér fyrir lögunum um Stjórnarráðið. Hann taldi þá að kominn hefði verið slíkur óskikkur á skipan stjórnsýslunnar og málaflokkar sem voru saman í ráðuneyti gátu skipst á jafnvel fleiri en einn ráðherra. Hann taldi nauðsynlegt að taka upp skipan sem þá var gerð með stjórnarráðslögunum frá 1969. Ég tel að það hafi verið skynsamlegt.
Ég er því ekki sammála því að þessi lagabreyting verði að veruleika. Hefði raunar verið fróðlegt í þessu samhengi að heyra álit lögfróðra manna því að mér skilst að þeir séu margir í hv. allsherjarnefnd. Finnst þeim ekki að það sé verið að framselja lagasetningarvaldið með þessu ákvæði, með því að með forsetaúrskurði sé hægt að breyta lögunum.
Það sem viðkemur 2. gr. frumvarpsins snýr einungis að orðinu „hagstofustjóri“ sem lagt er til að falli brott og ég hef enga athugasemd við, í samræmi við það sem ég hef sagt um Hagstofuna.
Þá erum við komin að 3. gr. laganna sem fjallar um starfsmannamál. Hér hefur ítarlega verið farið yfir þau sérstaklega vegna þess að í nefndaráliti minni hlutans er sérstaklega tekið á þessu ágreiningsefni. Ég vil ítreka það og undirstrika sem hefur komið fram hjá talsmönnum minni hlutans í allsherjarnefnd að hér er verið að blanda inn í frumvarpið málefni sem er alls óskylt breytingum á Stjórnarráðinu, þeim breytingum sem gera á á ráðuneytinu. Ég hef leyft mér að kalla þetta laumufarþega í lagafrumvarpi, að lauma inn þessu ákvæði sem ekkert á skylt við breytinguna á Stjórnarráðinu sjálfu.
Það segir í áliti minni hlutans að með þessari grein sé afnumin sú skylda að auglýsa störf innan Stjórnarráðsins. Við þessa breytingu gera samtök opinberra starfsmanna, bæði BSRB og BHM, verulegar athugasemdir og mótmæla því sem efnislega er gert ráð fyrir í þessari grein.
Það segir t.d. í umsögn BSRB eftirfarandi, með leyfi forseta:
„BSRB varar við því að hróflað verði við auglýsingaskyldunni og telur mikilvægt að fólki séu gefin jöfn tækifæri til starfa og starfsframa innan Stjórnarráðsins. Bandalagið áréttar að markmiðið með starfsauglýsingum er ekki eingöngu að tryggja jöfn tækifæri til starfa og starfsframa heldur einnig að hæfasti einstaklingurinn sem völ er á hverju sinni verði ráðinn til starfans. Jafnframt telur BSRB mikilvægt að gagnsæi sé viðhaft við ráðningar í störf. Sé þess gætt dregur verulega úr svigrúmi til ómálefnalegra vinnubragða við ráðningar. BSRB telur afar mikilvægt að ákvarðanir um ráðningar starfsmanna séu sýnilegar og að fólk, jafnt innan Stjórnarráðsins sem utan, geti auðveldlega séð hvernig að þeim sé staðið í öllum aðalatriðum. Jafnframt telur bandalagið mjög mikilvægt í þessu samhengi að horft sé til þeirra varna sem þegar eru fyrir hendi til að auka möguleika kvenna og aðkomu þeirra að störfum. Ekki verður annað séð en 3. gr. frv. kollvarpi helstu vörnum í þessu efnum. Að þessu leyti, sem og í ýmsum öðrum veigamiklum atriðum er það því niðurstaða BSRB að með frumvarpi þessu sé verið að stíga stórt skref aftur á bak.“
Í umsögn Bandalags háskólamanna segir, með leyfi forseta:
„Grunnhugsun bak við auglýsingaskyldu opinberra starfa er að tryggja að hæfasti starfsmaður sé ráðinn í hverju tilviki, jafnframt að gagnsæi sé tryggt við ráðningu opinberra starfsmanna.“
Þarna er kjarni málsins. Menn geta auðvitað haft þá skoðun að það sé þægilegt og hægt sé að ráða fólk til starfa án þess að störf séu auglýst í einhverjum tilvikum. Auðvitað er hægt að ráða fólk í tiltekin störf. Hér hefur þegar verið nefnt að hægt sé að ráða sérfræðinga í ráðuneyti í störf deildarstjóra, það er hægt að ráða fólk verkefnabundið í einstök verkefni innan ráðuneyta án þess að þau störf séu auglýst, hygg ég, en meginreglan á að vera sú að þessi störf séu auglýst. Hér hefur komið fram að þrátt fyrir að það séu kostir við að hafa þetta svigrúm eins og hér lagt til séu gallarnir mun fleiri.
Í umsögn BSRB um þetta frumvarp og þessa grein sérstaklega leyfir bandalagið sér að spyrja eftirtalinna spurninga sem ég ætla að rekja, með leyfi forseta:
„1. Verður starfsmaður valinn í laust starf án þess að öðrum starfsmönnum Stjórnarráðsins sé veitt formlegt tækifæri til að gefa kost á sér til starfsins?
2. Verða laus störf í öllum tilvikum auglýst innan Stjórnarráðsins?
3. Verður það matsatriði hverju sinni hvernig staðið skuli að vali starfsmanns, þ.e. hvort aðeins einn tiltekinn komi til greina eða að auglýst verði og þá til hvaða hóps auglýsing eigi að höfða?“
Það er grundvallaratriði í góðri stjórnsýslu að ákvarðanir, m.a. að því er lúta að mannaráðningum, séu rökstuddar. Þá þurfa menn að geta rökstutt af hverju tiltekinn einstaklingur er valinn í tiltekið starf. Það er auðvitað afar erfitt þegar um handahófskenndar ákvarðanir eða ráðningar er að ræða, þegar menn eru í raun pikkaðir upp og settir til starfa án þess að öðrum sé gefinn kostur á að sækja um á jafnréttisgrundvelli. Því er grundvöllurinn sem hér er verið að ræða um að allir eigi jafnan rétt, og rétt á því að sækja um starf, svo séu menn metnir að verðleikum.
Ég skil ekki af hverju það á að sveipa ráðningar hjá Stjórnarráðinu hulu. (KVM: Hvaða hulu?) Þeirri hulu að það sé ekki ljóst hvort málefnaleg sjónarmið ráða ferðinni við ráðningar á starfsmönnum. (Gripið fram í.) Það er ekki tryggt eins og málin eru lögð hér fyrir í þinginu að svo verði. Það eykur jafnvel þrýsting á ómálefnalegar ráðningar.
Hv. þm. Siv Friðleifsdóttir, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, greindi frá því í sinni ræðu að umræðan í þingflokki Framsóknarflokksins hefði m.a. verið sú, þar sem menn sem hafa allnokkra reynslu af því að stýra ráðuneytum, að menn teldu það mikinn kost að það væri skylda að auglýsa störf. (Gripið fram í.) Þá geta þeir að sjálfsögðu bara auglýst, það er út af fyrir sig rétt, en það er ekki skylt að gera það og þrýstingurinn verður sem áður talsverður á ráðherra.
Það er líka annað sem í þessu máli, þ.e. að þegar ekki er um formlegar auglýsingar að ræða og fólk er ráðið til starfa á grundvelli ákvarðana, ég ætla ekki að segja tilviljunarkenndra eða handahófskenndra eða ómálefnalegra ákvarðana. Ég segi einfaldlega: Á grundvelli ákvarðana sem ráðherra getur tekið á hverjum tíma þá liggur í hlutarins eðli að það verður ákveðin leynd yfir því hvaða sjónarmið réðu ferðinni af því að það er ekki allt sem er opið og liggur hreint og klárt fyrir.
Það hefur margsinnis verið nefnt að leynd af þessum toga — það á t.d. líka við um launaleyndina svonefndu — bitnar á konum í miklu ríkari mæli en á körlum. Það er undarlegt að ríkisstjórn sem talar um það í stefnuyfirlýsingu sinni að taka eigi jafnréttismálin föstum tökum skuli vilja viðhafa vinnubrögð af þessu tagi.. Það er líka undarlegt að ríkisstjórn sem boðar, a.m.k. sá hluti hennar sem samanstendur af Samfylkingunni, skuli tala um opna, gegnsæja stjórnsýslu, samræður og samtöl, en skuli vilja viðhafa vinnubrögð af þessu tagi og hlusta ekki á þau aðvörunarorð sem koma fram í umsögnum stéttarfélaganna og gera eitthvað með þau sem að gagni má koma.
Í ræðu sem formaður Samfylkingarinnar hélt og kennd var við Borgarnes segir m.a. á einum stað, með leyfi forseta:
„Í hinu frjálslynda lýðræði er hinum frjálsa einstaklingi skipað hærra en stofnunum samfélagsins. Þar tekur einstaklingurinn að sér að verja ákveðin grundvallarréttindi mannsins, þ.e. rétt hvers og eins til þess að skapa sjálfan sig, vera til á eigin forsendum, hafa sérstöðu og njóta viðurkenningar sem slíkur. Í hinu frjálslynda lýðræði viðurkennum við rétt fólks til skoðana, þar byggjum við á samskiptum og samræðum milli stjórnvalda og samfélags óbreyttra borgara.“
Samræður og samskipti milli stjórnvalda og samfélags óbreyttra borgara, það finnst mér t.d. vera að hlusta á samtök opinberra starfsmanna sem fjalla um þau álitamál sem uppi eru í tengslum við það frumvarp sem við erum að ræða. Það segir líka í sömu ræðu, með leyfi forseta:
„Ég vil gagnsæjar ákvarðanir um úthlutun embætta og gæða. Ég vil jafnræði og jafnrétti. … Ég vil að konur sitji þar við sama borð og karlar.“
Það er kostulegt að lesa þessi orð þegar maður ber þau síðan saman við það sem maður sér af efndum í því máli sem er til umræðu. Vegna þess að hér er ekki verið að hlusta á samtök opinberra starfsmanna. Hér er ekki verið að taka mark á eða taka mið af því sem fram kemur í áliti þeirra við þær breytingar sem á ferðinni eru og eiga eins og áður hefur komið fram í rauninni ekkert skylt við efni málsins að öðru leyti.
Við hljótum því að velta fyrir okkur, virðulegi forseti, hvernig Samfylkingin skýrir þessa stefnubreytingu. Formaður Samfylkingarinnar talaði í áður tilvitnaðri ræðu um jafnræði og jafnrétti og í stjórnarsáttmála er talað um að útrýma kynbundnum launamun. Leiðin til þess er að sjálfsögðu ekki það ráðningarferli hjá hinu opinbera eins og hér er lagt til. Vegna þess að jafnvel þótt aðeins sé verið að tala um Stjórnarráðið, og eru nú allmargir starfsmenn þar, þá er hætt við að þeirri aðferð verði síðan velt yfir á aðrar stofnanir ríkisins þegar fram líða stundir.
Að mínum dómi er því alls ekki verið að auka gagnsæi í stjórnsýslunni nema síður sé. Það er einmitt grundvallaratriði, mundi ég telja, jafnaðarstefnunnar, að minnsta kosti hinnar róttæku jafnaðarstefnu sem við vinstri græn stöndum fyrir, að í stjórnsýslunni sé gagnsæi, það sé lýðræði og menn viti hvernig ákvarðanir eru teknar, þær séu skýrar og ljósar og allir eigi jafnan rétt til að gefa kost á sér til starfa og verða metnir að verðleikum.
Við hljótum því að ítreka verulega athugasemdir okkar við að þessu ákvæði sé dembt inn í frumvarpið og ætlunin sé að keyra það í gegnum þingið á þann hátt sem meiri hluti hv. allsherjarnefndar leggur til í berhögg við opinbera starfsmenn.
Ég sagði í upphafi ræðu minnar, herra forseti, að ég gerði athugasemd við það að enginn ráðherra ríkisstjórnarinnar skyldi vera viðstaddur 2. umr., m.a. vegna þess að margvísleg sjónarmið hafa komið fram hjá hv. þingmönnum sem tekið hafa til máls í umræðunni sem hefði verið gagnlegt fyrir ráðherrana að kynna sér.
Í þeirri breytingartillögu sem meiri hluti allsherjarnefndar leggur til við fyrirliggjandi frumvarp er það eitt lagt til að forsætisráðherra skuli setja reglur um auglýsingu starfa innan Stjórnarráðsins. Nú vitum við svo sem ekkert í hverju þær reglur eiga að felast. Mér skilst að óskað hafi verið eftir því að hæstv. forsætisráðherra yrði boðaður á fund allsherjarnefndar en ekki hafi verið tekið undir það. Þá hefði til að mynda verið tilefni til þess að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvernig hann sæi slíkar reglur fyrir sér. Ég hefði gjarnan vilja spyrja hæstv. forsætisráðherra — ef tækifæri hefði verið gefið til þess, sem verður vonandi á morgun við 3. umr., fjarvera ráðherranna við þessa umræðu hlýtur að kalla á að umræða verði um málið við 3. umr. — hvert verði inntak reglna sem forsætisráðherra mun setja eða á að setja á grundvelli laga samkvæmt þeirri breytingartillögu sem meiri hluti allsherjarnefndar hefur lagt fram og hvenær hyggst ráðherrann setja slíkar reglur? Því eins og þegar hefur komið fram í umræðunni er ekkert sem segir neitt um hvort einhver tímamörk eru á því.
Ég hefði líka viljað spyrja talsmenn Samfylkingarinnar, fyrst og fremst hæstv. utanríkisráðherra, formann Samfylkingarinnar, eða eftir atvikum hæstv. félagsmálaráðherra sem fer með vinnumarkaðsmál í ríkisstjórninni, a.m.k. enn þá, nema þeim málaflokki verði skákað eitthvað annað, t.d. til iðnaðarráðuneytisins sem sárlega skortir verkefni að því best verður séð: Boða þessi vinnubrögð sem hér eru viðhöfð upphaf að samskiptamáta við stéttarfélög sem núverandi hæstv. ríkisstjórn hyggst ástunda? Ég hefði talið mikilvægt að við fengjum svör við þeim spurningum og vafalaust mörgum öðrum sem brenna á öðrum þingmönnum. Þetta eru atriði sem ég hefði viljað koma að í umræðunni og gjarnan viljað fá viðbrögð frá ráðherrum við.
Virðulegi forseti. Ég hef farið yfir fyrstu þrjár greinar í frumvarpinu. Ég tel ekki ástæðu til að fjalla frekar um frumvarpið, þ.e. 4. eða 5. gr., eins og það birtist hér og ég hef örlítið komið inn á þá breytingartillögu sem meiri hluti allsherjarnefndar hefur lagt til við fyrirliggjandi frumvarp. Ég tel að ég hafi í meginatriðum komið sjónarmiðum mínum á framfæri varðandi það frumvarp sem liggur fyrir. Ég tel að eðlilegra hefði verið að við hefðum haft heildarmyndina fyrir framan okkur. Heildarendurskoðun Stjórnarráðsins hefði legið fyrir þegar umræðan færi fram. Það hefði verið hnitmiðaðra fyrir alla aðila að mínum dómi og áreiðanlega fyrir þá sem vinna vinnuna. En það var kosið af hálfu hæstv. ríkisstjórnar að gera það ekki heldur leggja þetta fram í þessum bútum og koma síðan með frekari lagafrumvörp í haust sem tengist áframhaldi þessarar vinnu. Það væri þá fróðlegt að sjá hvernig það lítur út og við munum vafalaust eiga eftir að skiptast á skoðunum um það mál.
Ég vil í lokin, herra forseti, ítreka að hér eru ákveðnar spurningar sem ég tel mikilvægt að ráðherrar í ríkisstjórninni fái tækifæri til að svara. Og þar sem þeir eru ekki viðstaddir þessa umræðu áskil ég mér rétt til að ítreka þær við 3. umr. um lagafrumvarpið.