134. löggjafarþing — 8. fundur,  12. júní 2007.

Stjórnarráð Íslands.

1. mál
[20:53]
Hlusta

Frsm. meiri hluta allshn. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Árni Þór Sigurðsson hefur farið yfir sjónarmið sín í allítarlegu máli en ýmislegt í því gefur tilefni til andsvara. Að vísu hafa mjög mörg atriði sem hann gat um í ræðu sinni komið fram áður í umræðunni og ég hef svarað allmörgum þeirra í andsvörum við ræðum annarra talsmanna stjórnarandstöðunnar.

Ég tel þó rétt að árétta eitt sérstaklega. Það er vegna ummæla sem hv. þingmaður hafði uppi og raunar hefur örlað á í umræðunni fyrr í kvöld. Það er eiginlega sú ályktun eða tilfinning margra talsmanna stjórnarandstöðunnar að um verði að ræða, að því er varðar 3. gr. frumvarpsins, einhvers konar lagalegt tómarúm eða verið sé að sveipa ákvarðanir einhverri hulu eða leynd eða skapa svigrúm til geðþóttaákvarðana eða þess háttar. Þetta hefur komið upp í umræðunni hvað eftir annað. Ég taldi mig raunar vera búinn að svara því að einhverju leyti fyrr í kvöld. En mér finnst þó rétt að árétta að hafi menn haft slíkar áhyggjur þegar frumvarpið var lagt fram, þá ætti breytingartillaga meiri hluta allsherjarnefndar að koma verulega til móts við slík sjónarmið af því að í breytingartillögunni er einmitt gert ráð fyrir að um þessar ráðningar á grundvelli 3. gr. verði sérstakar reglur settar af forsætisráðherra og öllum ljósar, öllum aðgengilegar. Þar er jafnframt gert ráð fyrir auglýsingu þeirra starfa sem um ræðir auk þess sem áréttað er í nefndaráliti okkar, sem raunar hefur alltaf legið fyrir, að reglur stjórnsýslulaga (Forseti hringir.) mundu gilda um þessar ákvarðanir. Ummæli um annað eru mjög villandi að mínu mati.