134. löggjafarþing — 9. fundur,  13. júní 2007.

frestun á fundum Alþingis.

14. mál
[10:58]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Herra forseti. Núverandi löggjafarþing sem er hið 134. í röðinni situr að störfum til 1. október nk. Það eru engin sérstök áform um að kalla það saman fyrir þann tíma. Í stjórnarskránni er hins vegar gert ráð fyrir því að hægt sé að ákveða með lögum sérstakan samkomudag Alþingis og það hefur vissulega komið til tals eins og hv. þingmaður benti á að kalla þingið saman árlega eitthvað fyrr en gert hefur verið, þ.e. fyrir 1. október. Um það er hins vegar engin niðurstaða fengin og a.m.k. ekki að þessu sinni hvað varðar komandi haust enda hafa engin slík lög verið samþykkt. Þeir sem sátu hér á síðasta þingi muna kannski að þetta bar á góma á vettvangi þingflokksformanna og formanna stjórnmálaflokkanna en það varð engin niðurstaða að því leyti til að ekkert frumvarp kom fram og málið er þess vegna eins og það hefur ævinlega verið. Ef þingið verður ekki kallað saman sérstaklega, það 134. í röðinni, kemur nýtt þing saman 1. október nk. og verður þá nr. 135 í röðinni.