134. löggjafarþing — 9. fundur,  13. júní 2007.

viðaukasamningur um álbræðslu við Straumsvík.

13. mál
[12:09]
Hlusta

Frsm. meiri hluta iðnn. (Katrín Júlíusdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Miðað við ræðu hv. þingmanns er ég nokkuð undrandi yfir því að hún hefur ekki getað verið á nefndaráliti því sem meiri hlutinn skilaði. Hún lýsti þar mjög svipuðum áherslum og eru í nefndaráliti meiri hlutans.

Ég er undrandi á því að hv. þingmaður skuli reyna að búa til ágreining um þann þátt sem snýr að gildistíma hafnar- og lóðasamningsins, þ.e. að samningurinn sé í gildi til ársins 2014. Ég fór yfir það í máli mínu áðan. Hún heldur því fram að málið sé vanbúið þegar það er staðreynd að nefndin fór vel yfir málið. Um það snerust fjölmargir fundir hennar.

Virðulegi forseti. Eftir þá yfirferð er skýrt í huga meiri hluta nefndarinnar, þ.e. allra nefndarmanna nema hv. þm. Álfheiðar Ingadóttur, að þessi 0,1% regla muni falla úr gildi árið 2014 þegar samningstímanum lýkur. Það er skilningur nefndarinnar. Það að hv. þingmaður skuli gera jafnlítið úr því og hún gerði í sinni ræðu þykir mér leitt. Ég er undrandi yfir því og mér þykir það alger óþarfi.

Það er skilningur okkar og niðurstaða nefndarinnar eftir ítarlega yfirferð og samráð við iðnaðarráðuneytið, að staðan árið 2014 verði þannig, alveg skýrt, að búið verður að breyta þessum aðalsamningi og þessi hafnar- og lóðasamningur falli úr gildi. Þá standa eftir lögin eins og þau verða og sömuleiðis auðvitað réttur Hafnarfjarðarbæjar og Alcans til að semja vilji menn fara aðrar leiðir en lögin segja til um.