134. löggjafarþing — 9. fundur,  13. júní 2007.

viðaukasamningur um álbræðslu við Straumsvík.

13. mál
[12:15]
Hlusta

Frsm. minni hluta iðnn. (Álfheiður Ingadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Mér þykir leitt ef hv. þingmaður telur mig vera að búa til ágreining. Ég held að öllum megi vera ljóst að málið ber þannig að að á fundi nefndarinnar er kynnt það samráð sem haft var við iðnaðarráðuneytið, símleiðis vegna þess að starfsmenn þar voru erlendis, eins og ég segi, um hásumartímann, annars vegar um að það sé óhætt að trúa því að þetta falli niður á árinu 2014 og hins vegar lá þar fyrir það mat hafnarstjórans sem ég vil leyfa mér að lesa upp, með leyfi forseti:

„Það lítur þannig út að eftir að samningstíminn rennur út 2014 muni 0,1% reglan halda gildi sínu um ókomin ár.“

Þetta stendur í þessu bréfi og lái mér hver sem vill þótt ég segi að málið beri ekki rétt að. Það hefði verið hægt að vinna það betur og spara málaþras fyrir Hafnarfjarðarbæ sem þarf núna væntanlega að sækja rétt sinn með tilraunum til áframhaldandi samninga og jafnvel fyrir dómi varðandi gildistímann og síðan aftur til Alcans og jafnvel þeirra sem það kunna að eiga á árinu 2014 að breyta þessum samningi. Ég tel að það eigi ekki að láta mál bera að með þessum hætti, allra síst þegar það er upplýst að beiðnin kom fram 23. maí 2003 og 2–3 mánuðir í viðbót, fram til haustþings, hefðu ekki skipt sköpum fyrir afgreiðslu málsins en hefði getað létt þessari óvissu. Í nefndarálitinu hefði getað staðið að nefndin „væri þess fullviss“ og að nefndin „hefði fengið staðfest“ í stað þess að hér stendur að það sé „skilningur nefndarinnar“. Í þessu er afstaða mín fólgin, virðulegi forseti.