almannatryggingar og málefni aldraðra.
Já, já, talsmaður ríkisstjórnarinnar í velferðarmálum kallar það svo að það sé verið að gera helling fyrir öryrkja líka. Við skulum sjá hvernig aðrir upplifa það.
Ég var ekki að tala um stöðu öryrkja á meðan þeir eru á örorkulífeyristímabilinu, þ.e. frá því að örorkan hefst, þ.e. ef hún er frá byrjun, og þangað til þeir samkvæmt skilgreiningu breytast í aldraða. Ég er að tala um þá stöðu sem þá kemur upp. Þá eru þeir utan lífeyrissjóðakerfisins (Gripið fram í.) af því að lífeyrisréttur er ekki myndaður hjá þeim. Það er það sem spurningin snýst um í mínum huga. Á þá ekki að taka það formlega inn í lífeyrissjóðaávinnslukerfið og greiða inn iðgjöld fyrir þá þannig að þeir myndi slíkan rétt og verði jafnsettir öðrum þegar þar að kemur? Það held ég að sé langgæfulegasta aðferðin í þessum efnum.
Varðandi þessi aldursmörk segir hv. þm. Pétur Blöndal: Þetta fólk heldur bara áfram að vinna. En staðreyndin er sú að það býr við þessar miklu skerðingar þangað til það verður 70 ára og hættir að horfa til atvinnuteknanna. Það er búin til öfug kúrfa í þessum efnum. Venjan er sú að hugsa hlutina þannig að menn hafi mesta þörf fyrir hæstu tekjurnar eftir að starfsævinni lýkur. Þá hafi þeir heilsu, aðstöðu, möguleika og áhuga til að njóta lífsins og það sé vont að höggið verði of mikið. Hins vegar sé það síður skaðlegt kannski þó að réttindin deyi út eða lækki þegar menn ná enn hærri aldri. Þannig er sérsparnaðurinn hugsaður, að halda minna bili milli atvinnuteknanna og teknanna sem taka við fyrstu árin þar á eftir. Svo deyr hann gjarnan út, kannski við 75–80 ára aldurinn.
Hér er hv. þm. Pétur Blöndal í raun og veru að búa til algerlega öfuga kúrfu. Þetta verður miklu erfiðara fyrir fólk á bilinu 67–70 ára en þá batnar ástandið fyrir þá sem hafa heilsu til að nýta sér það þegar þar að kemur. Þetta er undarleg hugsun, verð ég að segja.