Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Það er verið að fækka ráðuneytum úr 14 í 12 með þeirri breytingu sem hér er lögð til. Hagstofan er ráðuneyti í skilningi laganna og við sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis fækkar um eitt. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytin eru formlega hvort sitt ráðuneytið samkvæmt lögunum í dag.
Hv. þingmaður rifjaði upp ummæli mín frá 1989 sem ég mundi ekki sjálfur eftir reyndar en þau eru góð og gild. Sannleikurinn er sá að á þeim 18 árum sem síðan eru liðin hefur ekki tekist að fara þá leið sem þar var talað um. Það hafði heldur ekki tekist á árunum 1983–1989 að endurskoða stjórnarráðslögin heildstætt. Þess vegna er það þannig, eins og ég sagði við 1. umr. þessa máls, að það verður einhvers staðar að byrja.
Þetta er góð byrjun sem hér er lögð til varðandi sjálfar lagabreytingarnar, varðandi Hagstofu Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytin og það er þá a.m.k. komið í veg fyrir að menn hagi sér eins og þeir gerðu 1988 og braski með Hagstofu Íslands í því skyni að koma saman ríkisstjórn eins og hv. þingmaður var sjálfur þátttakandi í á þeim tíma.